Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
372
UM ÍSLENDINGASÖGUR
lagið af Ljósvetningaþættinum og upphafið á
Guðmund-arþættinum, og með samanburði við C-handritin, sem
liafa geimt þessa kafla, sjáum vjer, að það svarar þvi, að
þessir kaflar og ekki meira komist á tvö blöð i A. Af
þessu virðist mega ráða, að í A liafi ekki frá upphafi
staðið þeir 2 þættir, sem C-flokkurinn hefur milli
niður-lags Ljósvetninga þáttar og Guðmundar þáttar, með
öðr-um orðum hvorki Sörla þáttur nje þátturinn af Ófeigi
og Reykhverfingum, og stiður þetta þá niðurstöðu, sem
vjer komumst að, að þessir þættir hafi ekki staðið i
sög-unni upphaflega. A hefur þá frá upphafi að eins innihaldið
Ljósvetningaþáttinn og firir vist Guðmundarþáttinn allan,
siðasta blaðið, sem til er, endar i miðju kafi í draumi
Einars þveræings, rjett áður enn sagt er frá dauða
Guð-mundar, —> enn fremur að öllum líkindum Eyjólfsþáttinn,
þó að ekkert minsta brot hafi geimst af honum i þessu
handriti, enn að hann hafi staðið i handritinu frá
upp-liafi, leiðir af þvi, að þessir 2 þættir — Guðmundar og
Eyjólfs — virðast frá upphafi hafa verið ein samfeld saga,
sem áður var sint, og af því, að A hefur spádóma þeirra
Drauma-Finna i ráðningunni á draumi Guðmundar og
Þórhildar Vaðlaelckju um það, að mannhefndir firir
Þor-kel hák muni koma fram á einhverjum sini Guðmundar,
enn þessir spádómar visa til vígs Koðráns
Guðmundar-sonar, sem Eyjólfsþátturinn segir frá.
Vjer getum þá sjeð, hvernig Ljósvetninga saga,
eins og vjer liöfum hana, muni vera til orðin.
Upp-haflega urðu til 4 sjálfstæðar og ósamlcinja sögur,
Ljósvetninga saga, Sörla þáttur, Ófeigs saga og
Reyk-hverfinga og Möðruvellinga saga. Þá tók maður sig
til, likiega á hinni miklu safnöld, 14. öldinni, og steipti
saman 2 af þessum sögum, Ljósvetninga sögu og
Möðru-vellinga sögu. Frá þeirri samsteipu stafar sú gerð
sög-unnar, sem leifar eru af í A. Nokkru síðar bætti svo annar
safnandi inn i þessa eldri samsteipu Sörlaþættinum og
þætti Ófeigs og Reykhverfinga milli Ljósvetningaþáttar
og Möðruvellingaþáttar. Þetta er liin ingsta gerð
sögunn-ar, sú sem geimst hefur i C-handritunum.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>