Full resolution (JPEG)
- On this page / på denna sida
- Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread.
/ Denna sida har aldrig korrekturlästs.
39
ur maður og duglegur og faðir hans er
einhver efnaðasti bóndinn og mest metinn
í sinni sveit.
LJÓT
Mér þykir ekki vænt um Hálfdan. Þú
vilt ekki, að eg giftist manni, sem mér
þykir ekkert vænt um hallar sér fram á girðinguna.
JÓRUNN
Þér fer að þykja vænt um hann þegar
þið eruð gift. Gengur til hennar. Petta er
vandamál. Þú iðrast ekki eftir því þó að þú
hugsir þig vel um. Þú mátt vara þig á
því að hrinda gæfunni frá þér, þegar hún
kemur upp í hendurnar á þér, það hefnir
sín. Og það veiztu, að við foreldrar þínir
viljum þér ekkert annað en alt hið bezta.
LJ ÓT með grátstaf í kverkunum
Mér finst þið bæði vera svo hörð við
mig, þú og pabbi.
JÓRUNN strýkur hárið á Ljót
Þú leynir mig einhverju. Eg get hugs-
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Project Runeberg, Tue Jun 2 10:50:53 2026
(www-data)
(download)
<< Previous
Next >>
https://runeberg.org/sjhrauni/0043.html