Full resolution (JPEG)
- On this page / på denna sida
- Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread.
/ Denna sida har aldrig korrekturlästs.
109
SÖLVI
Ég vil ekki taka við jörðinni. Ég get
unnið fyrir okkur Ljót.
SVEINUNGI
Eg tala ekki við þig. — Þú ert
trúlofuð Hálfdani, þú veizt, að eg sendi boð til
Árna og lét hann vita, að það mál væri
útkljáð.
LJÓT Ö
Þú verður að fyrirgefa mér, pabbi. Eg
hefi aldrei elskað neinn mann fyr — eg
þekti ekki þá tilfinningu.
JÓRUNN
= Það hefir aldrei komið fyrir í okkar
ætt, Ljót, að nokkur kona hafi svikið
unnusta sinn, ef þú bregzt Hálfdani, þá
verður þú sú fyrsta.
LJÓT xrýpur
Manstu eftir því, pabbi, þegar eg var
svo lítil, að eg tók um hnéð á þér, þá
gaztu ekki neitað mér um neitt. — Ég er
sama litla stúlkan þín enn þá.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Project Runeberg, Tue Jun 2 10:50:53 2026
(www-data)
(download)
<< Previous
Next >>
https://runeberg.org/sjhrauni/0113.html