Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
raun. Vjer ætlum að biðja einn af förunautum
vor-um að fleygja frá sjer pyngju sinni, úttroðinni með
peniagum. |>jer purfið eigi að hika yður, ekkert er
í hættu. Værum vjer staddir niðri á jörðinni, mundi
hún að vísu, ef vjer t. a. m. fleygðum henni út um
glugga, falla 15 fet þegar fyrstu sekúnduna, eins og
hver annar þungur hlutur, og þá væri fallega gjört
að grípa hana á lopti, en hjer, þar sem vjer erum nú
staddir á ferð vorri, vinnum vjer oss ekki hægra verk.
Orsökin til þessa er sú, að vjér erum komnir svo langt
burt frá jörðinni, að mikið er farið að draga úr
að-dráttarafli hennar. Vjer erum staddir á miðri leið
26 þús. mílur frá miðpunkti jarðarinnar, eða hjer um
bil 30 sinnum fjær honum, en þegar vjer reikuðum á
yfirborði hennar. En í þrítugfaldri fjarlægð er
að-dráttarafiið eigi að eins 30 sinnum minna, heldur 30
sinnum 30, það er 900 sinnum minna. Pyngjan,
sem niðri á jörðinni mundi falla 15 fet á fyrstu
sekúndunni, fellur hjer, eins og tilraunin sýnir, 900
sinnum hægar, svo hægt, að vjer höfum tíma til að
hnerra þrisvar ef ekki optar áður en vjer rjettum
höndina út til að taka hana á fallinu.
Annað undrumst vjer þó enn meir hjer miðja
vegu millum jarðarinnar og tunglsins, og það
er, að allir hlutir virðast hafa misst þunga sinn.
Ferðaskrín vor eru laufijett, og ekki eigum vjer
held-ur örðugt með að lopta förunautum vorum, því nú
vega þeir að eins nokkur kvint. Alt þetta leiðir af
því, að vjer erum komnir 26 þús. mílur frá jörðinni.
Vjer skulum samt ekki láta hjer við lenda, heldur
halda enn þá áfram einar 12 þús. mílur ; þá hefir
jörðin minnkað svo mjög, en tunglið stækkað, að þau
virðast vera jafnstór, og hvort um sig hjer um bil 5
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>