- Project Runeberg -  Förin til Tunglsins /
21

(1884) [MARC] Author: Sophus Tromholt
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

bjarmi rije glóandi litir á himninum, sem vjer
þekkj-um svo vel frá jörðinni. Sólin kastar allt í einu, frá
hinum svarta sjóndeildarhring, björtum og óbrotnum
geislum á fjallatindana og krýnir þá með skínandi
geislaskrúði, en niðamyrkur grúfir yfir hlíðum og
dölum, fjallatindarnir synda eins og ljóseyjar í þessu
myrkurhafi. Yið birtinguna eptir hina 354 tíma
löngu nótt berst oss ekkért hljóð til eyrna. Hinn
upprennandi dagur vekur enga hinna alþekktu radda
í ríki dýranna; enginn vindblær leikur um laufgaðar
limar; enginn fugl svífur mót hinum svarta himni;
engin jurt skrýðir hinn gróðurlausa jarðveg, og
ekkert dýr, sem vjer þekkjum, bærist þar.

Smátt og smátt færist sólskinið niður eptir
hlíð-unum, en 29 sinnum hægar en vjer erum vanir, og
nær því 12 tímar líða áður en öll austurhlið gígsins
stendur í glóandi geislum, sem vjer þolum eigi að
horfa í. Ef vjer lítum aptur og skyggnumst ofan í
gíginn, sjáum vjer að eins niðamyrkur; en tíminn
líð-ur, og smátt og smátt þokast sólskinið yfir brúnir
hringfjallsins, uns það er komið allt í kring, oghinn
ógurlegi gígur, sem er tugur mílna að þvermáli, er á
að sjá sem dökkur hylur með skínandi ljósbröndum
umhverfis. Innan skamms skýtur björtum tindum
upp úr miðju djúpinu; það eru tindar miðfjallanna,
sem sólin skín nú á. ]?egar vjer lítum aptur frá
sjónarhól vorum yfir sólhlið hjeraðsins, sjáum vjer
hrikalegt landslag, sém ber vott um ógurleg
elds-umbrot. f>ar er gígur við gíg svo langt sem augað
eygir, og þegar fljótlega er litið á þennan gígafans,
er líkast því sem froðulag liggi á jörðiuni. Ofan
undan oss tekur hvert hamrabeltið við af öðru og hver
gjáin af annari, sem gígar og gapandi sprungur gjöra

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Fri Oct 18 17:50:13 2024 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/tunglsins/0025.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free