- Project Runeberg -  Förin til Tunglsins /
22

(1884) [MARC] Author: Sophus Tromholt
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

þó hlið á; þar eru hrauudrangar, vikurdyngjur og
ótal margt annað, sem eldgos framleiða.

Smámsaman færast geislar morgunsólarinnar
nið-ur eptir innanverðum brúnum hringfjallsins gagnvart
oss. Enn er myrkur á helmingi gígbotnsins og hins
stórkostlega keiluklasa, sem rísa úr miðju hans.
f>ótt vjer sjeum margar mílur frá keilum þessum og
helmingi lengra frá fjallsrótunum hinumegin gígsins,
virðist oss fjarlægðin mjög lítil, því þar sem ekkert
gufuhvolf er, er heldur ekkert Ijós-perspehtiv, svo að
fjarlægir hlutir sjást eins skýrt eins og þeirværu
ör-skammt frá.

f>að er gufuhvolf jarðarinnar, sem mest fegrar
þar útsýnið yfir löudin ; hjer á tunglinu vantar
öld-ungis þessa deyfandi blæju, sem loptið hjúpar ásýnd
náttúrunnar með. A jörðinni dregur gufuhvolfið úr
ofbirtu sólarinnar, en á tunglinu er ekkert, sem
dragi iir birtunni, sólin virðist jafnvel miklu nær
en hún er í raun rjettri, og ljós hennar er svo bjart,
aðþví verður ekki líktviðannað en
stórkostlegtrafur-magnsljós, sem er örskammt frá auganu. Sólarljóminn
verður enn þá fjarskalegri sökum þess aðhimininn í
kring er alsvartur. f>ar eð ekkert gufuhvolf er á
tungl-inu, er himinhvelfingin þar ekki heldur blá, eins og á
jörðinni; því á tunglinu er ekkert sem getur dreift
sólargeislunum ; alls engin væta, sem jafnvel í
hita-belti jarðarinnar tvístrar sólarljósinu,
oggefurhimn-inum hinn fagra bláa lit. Hjer er himininn
dimm-ari jafnvel um hádaginn, en í hinum fegurstu
tungl-skinslausu nóttum á jörðirlni; og ekki virðist oss
síður kynlegt, að sjá stjörnurnar jafnt stórar sem
sináar skína á hinum svarta himni jafnvel þegar
sólin er hæst á lopti.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Fri Oct 18 17:50:13 2024 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/tunglsins/0026.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free