Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
ar ganga fyrir sólskífuna, því vjer höfum einmitt
valið þann dag til tunglfararinnar, þá er þar verður
algjörður sólmyrkvi, til þess að ferðafólkið geti einnig
notið þessarar sjónar, sem er miklu stórkostlegri en
sólmyrkvi á jörðinni. |>egar vjer sjáum tunglið
þaðan bera fyrir sólina, eru báðir hnettirnir
jafnstór-ir, og hreyfast hvor á móti öðrum, svo almyrkvinn
varir í mesta lagi 7 mínútur. Hjer getum vjer
notið þessarar sjónar svo tímum skiptir; því skífa
jarðarinnar er ferfalt breiðari en sólarinnar og
stendur auk þess grafkyr á sama stað, en hins vegar
ér hreyfing sólarinnar hjer 29 sinnum hægari en á
jörðinni. |>ar sem randir beggja skífanna mætast,
verður rönd sólarinnar óskír, og brátt sjáum vjer
hina myrku rönd jarðarinnar færast yfir sólskífunar
og draga úr dagsbirtunni. Bptir einn tíma er að
eins eptir af sólinni lítil sigðmynduð rönd, sem
þverr-ar óðum, en áður en hún hverfur sjáum vjér öll
fjöll í vesturátt hjúpast myrkvi, þar sem hinn
keilumyndaði skuggi jarðarinnar fellur á. |>egar
hinn síðasti sólgeisli hverfur, skellur yfir
kolniða-myrkur, en hins vegar ljóma stjörnurnar skærar en
nokkru sinni fyr á hinum alstirnda himni. |>annig
myrkvast sólin um hádaginn, og hin stóra, svarta
jarðskífa or nú gyrt breiðu og björtu bjarmabelti,
sem fram kemur af gufuhvolfi sólarinnar, og krýnd
gullnum dýrðarljóma, sem fram kemur við það, að
sólargeislarnir falla gegnum gufuhvolf jarðarinnar.
Hinn stóri jarðarhnöttur, sem hangir á himninum,
erá að^sjá sem íbenviðarkúla, greypt í glitrandihring,
settum gulli og rúbínum. Hinn dýrðlegi geislakrans
kastar rauðum bjarma yfir landið umhverfis oss.
A þessu augnabliki eru frændur vorir á jörðinni að
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>