Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
skoða algjörðan tunglmyrkva. Smámsaman fer
geislakransinn að verða bjartari og bjartari. Eptir
einn klukkutíma sjest sterk birta á alls éinum stað,
og bendir á, að þar muni hinnfyrsti sólgeisli brjótast
fram. Meðan vjer bíðumeptir því augnabliki, sjáum
vjer bláleitan bjarma slá á vesturfjöllin í fjarska, og
eptir nokkrar sekiíndur er hin stórkostlega sjón á
enda og aptur orðið bjart. Hinn bjarti faldur
jarð-arinnar hverfur hægt og hægt, skuggarnir hverfa af
austurfjöllunum, minnstu stjörnurnar hverfa, og fám
tímum seinna hefur sólin fengið aptur kringlulögun;
vjer sjáum jörðina aptur, en nú er hún hinu megin
sólarinnar, það er að segja austan við hana, og er á
að sjá sem mjór Ijósbogi, sem fer smábreikkandi.
Um miðdagsbilið sjáum vjer ekkert annað
um-hverfis oss en ofsabirtuna og hrafnsvartan himininn.
Kveldskuggarnir færast mjög hægt yfir, og seint og
sígandi þokast þeir yfir dalina og upp eptir
hlíðun-um hinu megin. 180 tímum eptir hádegi fer fyrst
að líða að sólsetri; þá sjáum vjer að eins hið
gagn-stæða við það, sem vjer sáum í döguninni. Engum
kveldroða slær á himininn, þegar sólin sezt; hún
hnígur með fullum ljóma niður að hinum dimma
sjóndeildarbaug, en litur hans breytist alls eigi við
það. f>egar að cins mjó rönd sjcst af sólinni,
rökkr-ar lítið eitt, en það varir skamma stund, því sólin
er þegar horfin og nátthimininn hvelfist yfir.
Sú sjón, sem þá ber fyrir augu vor, er án efa
hið fegursta, sem oss gefst kostur á að sjá á
tungl-inu. Hátt á hinni alstirndu himinhvelfingu skín
jörðin eins og stórt tungl, 13 sinnum stærra en
tunglið sýnist frá jörðinni. |>egar náttar, er jörðin
hálfbjört, og á að sjá sem tungl á fyrsta kvartili, en
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>