- Project Runeberg -  Förin til Tunglsins /
31

(1884) [MARC] Author: Sophus Tromholt
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

bærum vjer það saman við jörðina, sem ávallt snýst
um ás siun, eða sólina, sem gengur frá
sjóndeildar-baug til sjóndeildarbaugs, eða stjörnurnar, sem allar
hreyfast á himinhvelfingunni, þótt hægt sje, þá
hlyt-um vjer að ætla, ef vjer vissum eigi betur, að tunglið
væri fast og óbifanlegt, en allir aðrir himinhnettir
væru á hreyfingu. Hjeðan að sjá er ekkert eðlilegra,
en að sólin gangi kringum tunglið, og að jörðin sje
svo að segja sköpuð að eins til að lýsa tunglinu um
nætur.

Eigum vjer að yfirgefa tunglið án þess að bregða
oss yfir á hina hlið þess, sem aldrei snýr að
jörð-inni? Jeg er hræddur um að ferðafólkið sje orðið
þreytt og óski að komast heim; en hins vegar yrði
það að öllum líkum árangurslítið að fara þangað.
Menn þekkja nokkuð meira en helming tunglsins,
því við ýms tækifœri er hægt að skyggnast, hjeðan
frá jörðunni, lítið eitt yfir rönd þess; en ekki hafa
menn getað fundið þar neitt merkilegt eða frábrugðið
því, sem er á þeirri hliðinni, er að oss veit. |>ar
eð menn því vita, hvernig f- tunglsins líta út, eru
engar líkur til að vjer munum finna nokkrar
nýj-ungar á hinum f pörtum þess. Stjörnufræðingarnir
einir mundu kunna þar vel við sig, þar eð næturnar
eru ávallt dimmar, og himininn ávallt heiðskír og
stjörnuber, vegna þess að ekkert gufuhvolf skyggir á.
f>að er óhætt að segja, að á engri reikistjörnu í öllu
sólkerfinu er jafnhentugur staður fyrir stjörnuturn,
eins og á þessari hlið tunglsins, sem veit frá jörðinni.

Vjer stígum nú aptur á hugarfley vort og
höld-um heim á leið. Vjer kveðjum þenna undraheim,
sem vjer höfum dvalið á um stundarsakir, og sem
er oss mjög ókunnur að mörgu leyti, þótt hann sje

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Fri Oct 18 17:50:13 2024 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/tunglsins/0035.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free