Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
að tiltölu nærri oss ; hann hefir sýnt oss Ijósan vott
þess, hversu margbreytilega hin gjafmilda hönd
náttúrunnar hefir stráð gjöfum sínum yfir hnettina í
geimnum, og veitt sjérhverjum þeirra sjerstakt eðli
og ásigkomulag. Vjer höfum komizt að raun um, að
á þessum nágrannahnetti er öllu svo mjög á annan
veg háttað en hjá oss, að það væri fjarstætt að ætla,
að vjer fyndum á þessum hnetti verur, sem líktust
oss að skapnaði og eðli. Vjer getum og verið vissir
um, að tunglbúum mundi eigi síður bregða í brún,
ef þeirn gæfist einhvern tima kostur á að að kynna
sjer nákvæmlega, hversu til hagar á jörðinni.
|>ýzkur stjörnufæðingur, Mádler að nafni, hefir
einu sinni reynt að sýna inn í huga lærðs tunglbúa
eins, sem hann lætur ferðast til jarðarinnar, og
síð-ar, eptir að hann er kominn heim aptur til
tungls-ins, skýra frá því á náttúrufræðingafundi, sem fyrir
hann héfir borið á jörðinni, og hvernig áhrif það
hafi haft á hann. Vjer höfum fengið oss eitt eintak
af fyrirlestri þessum, meðan vjer stóðum við á
tungl-inu ; fyrirsögnin er: »Ferðin til jarðarinnaw. Með
fyrirlestri þessum skulum vjer stytta oss stundir
meðan far vort flytur oss aptur til jarðarinnar; því
vjer förum sömu leið og vjer komum, svo ekkert nýtt
ber fyrir oss.
Fyrirlestur þessi var haldinn á hringfjalli einu á
9. stigi norðlægrar breiddar, 19-J- stigi austlægrar
lengdar. Fjöldi manna hlýddi á með athygli, og
fórust hinuin lærða tunglbúa þannig orð:
»Tunglbúar góðir!
|>jer hafið skorað á mig að taka mjer fyrir
um-ræðuefni hinn stóra hnött, sem svífur yfir höfðum
vorum, og sem er sól vor um nætur, en klukka um
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>