- Project Runeberg -  Förin til Tunglsins /
34

(1884) [MARC] Author: Sophus Tromholt
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

eigi brött. Jeg kom upp áýms allhá fjöll, sem
reynd-ar líktust alls ekki fjöllum í mínum augum. En þó
að landslagið virtist svona hagkvæmt, kostaði það
ó-segjanlega erfiðismuni að komast upp fjöll, sem voru
nokkuð há að mun; og jeg get fullvissað yður um,
að það er ekki hættulaust; mjer var meira að segja
sagt, að allmörg þeirra væri «ógeng»—þjer fyrirgefið
mjer þetta óvanalega orð, en þjer munuð síðar fá að
heyra fieira slíkt.

f>að mundi vera því nær ómögulegt að komast um
jörðina, ef íbúar hennar hefðu eigi lagt kapp á og
kepptu enn af fremsta megni við að Ijetta og flýta
hinum nauðsynlegustu hreyfingum, og að sigra
all-ar hinar einkennilegu hindranir, sem jeg mun síðar
minnast á, með ýmsum listalegum útbúnaði, sem
ber ljósan vott um frábæra skarpskyggni. Jeg hefi
haft með mjer nokkur sýnishorn af slíkum smíðum.
Hin helztu þeirra eru vagn, gufuvjel, járnbraut,
gufu-skip, brú og stígi, og skal jeg síðar reyna að skýra
þessi óþekktu heiti og hluti fyrir smiðum vorum.

I sama tilgangi hafa þeir valið ákveðnar línur til
að ferðast eptir, og víkja mjög sjaldan af þeim. A
þessum línum er jarðvegurinn sljettaður af manna
höndum, og ótal margt gjört til þess, að sem
fljót-farnast vcrði cptir þeim.

Jeg get ekki vikið frá þessu umtalsefni, án þess
að minnast á undarlegan líkama, sem var tíðari á
yfirborði jarðariunar, en nokkuð aunað. Ef þjer
htið að eins á himininn, sjáiðþjer, að á meiri
hlut-ann af yfirborði jarðarinnar slær bláum samlitum
blæ, og allt þetta bláa flæmi er líkaminn, sem jeg
gat um. Hann hefir enga ákveðna mynd, heldur
breytist á hverju augnabliki eptir því sem á stendur,

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Fri Oct 18 17:50:13 2024 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/tunglsins/0038.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free