Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
og svo er haun fádæma linur, að menn mæta nálega
engri mótstöðu, þótt þeir grípi í hann með hendinni,
og meir að segja sökkvi sjer á kaf í hann.
Omögu-legt er að ganga á þessum líkama og hættulegt er
að hreyfa sig í honum, því lyki hann um mann
all-an getur það dregið til dauða. Aldrei liggur hann
kyr, hvert sem honum er kastað, nema efa vera
skyldi í einhverri dæld, heldur tvístrast allur, svo vart
er hægt að finna hann aptur. Vegna þess hann er
á sífeldri hreyfingu að heita má, hefur hann sjálfur
myndað sjer niðurgrafna farvegi, sem hann hreyfist
um. Líkami þessi er einnig gagnsær og nota
jarð-búar hann á ýmsan hátt; þeir segja enda að hann
sje öldungis ómissandi fyrir þá, og að menn geti ekki
lifað þar, sem hann sje ekki. Jeg verð að leggja
trúnað á þetta, þar eð öllum jarðbiium bar saman
um það, enda þótt mjer sje það óskiljanlegt, eins og
yður. Til þess að þetta svo kallaða »vatn« hindri
eigi gjörsamlega hreyfingar þeirra, hafa þeir fundið
upp mjög einkennilegan útbúnað, sem þeir yfirstíga
nálega allar hindranir þess með. Bn vatnið
breyt-ir eigi að eins stað sínum á jörðinni, heldur virðist
það stundum hverfa að meira eða minna leyti.
fett.a verður á mjög kynlegan hátt. f>jer hafið
þeg-ar fyrir löngu tekið eptir hinum gráu bólstrum, sem
þokast um yfirborð jarðarinnar, og sem eru enn
breytilegri en blettirnir á sólinni og Júppiter; það er
vatnið, sem virðist hverfa, en í allt annari mynd en
áður. |>að hefur uppleyst sig og blandazt loptinu,
sem lykur um jörðina, og þetta lopt og þjettleika
þess getum vjer sjeð hjeðan frá tunglinu. Stundum
fellur vatnið niður aptur og er þá ýmist sem smá
vatnskúlur, eða sem hvítleitt og fastara efni.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>