- Project Runeberg -  Eimreiðin / II. Ár, 1896 /
11

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

17

hjeldu nokkrir mikils megandi þingmenn (einkum Orla Lehmann,
og hann studdi Krieger o. fl.) þvi fram, að með útgáfu
grundvallar-laganna hefði hið íslenzka löggjafarvald komizt í hendur
rikis-þingsins, og það ætti því að ákveÖa, hvort og að hve miklu leyti
veita skyldi Islendingum hlutdeild í löggjafarvaldinu að því er
snerti hin sjerstaklegu málefni landsins. Fyrir þessari skoðun var
barizt af svo miklu kappi á landsþinginu, að stjórnin var kúguð
til að låta undan síga. Frumvarp landsþingsnefndarinnar var þó
aldrei samþykkt með fullnaðaratkvæði; en eptir að Krieger var
orðinn dómsmálaráðherra, lagði hann 5. okt. 1870 fyrir
fólks-þingið frumvarp, sem fór í sömu áttina, og það frumvarp var
samþykkt af ríkisþinginu og staðfest sem lög 2. jan. 1871 (o:
stöðulögin).

En þótt nú Krieger legði frumvarpið fyrir í þessari mynd,
þá virðist þó nokkurn veginn mega ráða það af ræðum hans á
ríkisþinginu, að hann viðurkenni, að þessi aðferð sje í rauninni
mjög svo óregluleg, því hann segir, eins og fyrirrennarar hans, að
í rauninni komi hin sjerstaklegu málefni Islands rikisþinginu ekkert
við. En hann álítur þessa aðferð nauðsynlega sem neyðarúrræði
til þess að komast úr því ástandi, sem orðið væri því nær
óþol-andi. A þingfundi fólksþingsins 11. nóv. kemst hann þannig að orði:

»Aðaltilgangurinn með að bera upp frumvarp þetta er í tvöfalda stefnu:
fvrst að því leyti, er ríkisþingið snertir, þá er það sjáífsagt þetta, að maður vill
koma breytingu á þá óheppilegu stöðu, eða ógöngur, sem ríkisþingið er komið
í, þar sem hjer verður að ræða um fjárveitingar til að koma fram lögum og
ákvörðunum, sem ekki heyra undir tírskurð rikisþingsins; en að því leyti, er
ís-land snertir, þá er, eins og nærri má geta, tilgangurinn sá, að ná undirstöðu,
sem byggt verði á nýtt og betra skipulag, að komast út úr þessu ósæla ringli,
sem n’ú ræður þar upp frá . . . . jeg er sannfærður um, að samþykkt þessa
lagafrumvarps er hið nauðsynlega skilyrði fyrir því, að orðið geti nokkur hin
minnsta framför í ástandinu á Islandi.«

Hann segir enn fremur:

»Jeg lofa ekki þinginu, að lagafrumvarpi þessu muni verða tekið með miklu
þakklæti; jeg heimta ekki, að Islendingar blessi mig fyrir það; jeg er jafnvel
undir það búinn, að þeir smábölvi mjer; en þetta þurfum vjer ekki að låta á
oss festa.«

Þessi ummæli benda óneitanlega á, að ráðherrann með sjálfum
sjer viðurkenni, að í rauninni sje það ekki fullkomlega rjett
gagn-vart Islendingum, að låta ríkisþingið ræða og samþykkja lagaákvæði,
sem einungis heyrðu undir hið sjerstaka löggjafarvald Islands. Þetta
styrkist enn frekar við ummæli hans á landsþingsfundi 17. nóv.,
þar sem hann meðal annars kemst svo að orði:

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:04:07 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1896/0017.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free