- Project Runeberg -  Eimreiðin / II. Ár, 1896 /
12

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

12

»Þvf þaö er einmitt hiö einkennilega, og svo að kalla dæmalausa, við þetta
ástand, að hin sjerstaklegu mál sjálf, sem hjer koma til greina, og löggjöfin um
þau sjerstaklega, eru ríkisþinginu óviðkomandi, þegar ekki er litið til hinnar
fjár-hagslegu hliðar. Þau heyra öll, eptir því sem hingað til hefir við gengizt, undir
ráðgjaíaratkvæði alþingis, og þegar alþingi hefir sagt álit sitt um þau, er það
konungur, sem kefir vald d aö auglýsa eöa gefa út fyrirskipanir, innan þeirra
tak-marka, sem ákveðin eru í alþingis-tilskipuninni og öðrum ákvörðunum, sem þar
til heyra, fyrir hið sjerstalclega islenzka löggjafarsvið.«

Það er þannig viðurkennt jafnvel af þeim ráðherra, sem kom
stöðulögunum á framfæri, að þessi lög hafi inni að halda ákvæði
um málefni, sem hafi verið rikisþinginu óviðkomandi. Og þegar
nú þessu er þannig háttað, hvernig getur þá það atvik, að
ríkis-þingið með þvi að samþykkja lagaákvæði, er snertu stjórnarskipun
Islands, hefur stigið feti framar en það var um komið, haft nokkra
rjettarþýðingu gagnvart Islandi? Nei, lögin eru að því leyti, sem
þau eru samþykkt af ríkisþinginu, einungis bindandi fyrir
Dan-mörku, en fyrir Island hefur samþykki ríkisþingsins — þegar
fjár-hagsákvæðin eru frá skilin — alls enga þýðingu. Fyrir Island eru
lögin einungis bindandi að þvi leyti, sem þau eru gefin af hinum
einvalda konungi, því þegar þau vóru gefin út, var hið íslenzka
löggjafarvald i höndum hans eins.

Þessi skoðun, að lögin, að því leyti sem þau eru samþykkt
af rikisþinginu, væru einungis bindandi fyrir Danmörku, kom líka
þegar fram við umræðurnar á fólksþinginu bjá Dr. Winther, án
þess að nokkur hreyfði mótmælum gegn henni. A þingfundi
ii. nóv. farast honum þannig orð:

»I 7. gr. er kveðið svo að orði: »lög þessi öðlast gildi x. dag aprílmánaðar
1871«. Jeg hugsa mjer, að þessi ákvörðun geti orðið orsök til mótmæla af hálfu
Islendinga, að þeir nefnilega kunni að halda, að engin lög, sem snerta ísland,
eigi að geta oröiö gildandi fyra en þau hafi verið lögð.fyrir alþingi; en það er
ómögulegt, að lög þessi geti orðið lögð fyrir alþingi á Islandi fyrir 1. apríl 1871.
Hjer vil jeg þó einnig halda því fram, að ákvörðun þessi hafi íulla heimild, því
hún þýöir, að lög þessi gilda milli hinnar dönsku stjórnar og hins danska rikisþings
þ. t. jyrir Danmörku; ,en því næst gilda þau og að nokkru leyti fyrir ísland, sem
sje að pvi leyti, aö Islendingar geta ekki vanzt eöa krafizt harra tillags til sinna
sjerstaklegu útgjalda.«

Menn geta af þessu sjeð, að sú skoðun, sem jeg hefi haldið
fram hjer í kveld, er engin ný skoðun, sem jeg eða Islendingar
yfir höfuð hafi fundið upp á. Hún hefur þegar komið fram við
umræðurnar um lögin sjálf á hinu danska fólksþingi og verið þar
sett fram af einum af fulltruum hins danska höfuðstaðar
(Kaup-mannahafnar).

Jeg sný mjer þá að stjórnarskránni.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:04:07 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1896/0018.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free