- Project Runeberg -  Hvíta Bandið 50 ára 1895-1945 /
27

(1945)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

Ingi’cldur Einarsdóttir:

Þingvallaför 1930

Ég hef lofað formanni Hvitabandsins
að skrifa eitthvað um dvöl nokkurra
fé-lagskvenna á Þingvöllum um
Alþingshá-tíðina 1930. En því miður er hætt við að
efndir verði lélegar, mest vegna þess, að
mörg atriði þeirrar farar eru mér nú
gleymd.

Mig minnir að skotið væri á aukafundi
nálægt mánaðamótum mai—júní 1930.
Víst er það, að tíminn var stuttur fyrir
stafni, þegar Sigurbjörg Þorláksdóttir bar
fram tillögu um það að Hvítabandið
reyndi að hafa veitingar á Þingvöllum
hátíðardagana, og legði hver kona sitt til
að svo mætti verða. Hvort sem talað var
um þetta fleira eða færra, var tillagan
samþykkt, og undirbúningur hafinn. Eg
átti þess lítinn kosit að taka þátt í
undir-búningi veitinganna, en nokkrar konur
lögðu þar til vinnu og fé af mikilli alúð.
Til Þingvalla komum við sumar einum
degi fyrir hátíðahöldin, aðrar næstu daga,
munum hafa verið 10—15, sem vorum
þarna á vegum félagsins til aðstoðar sem
sjálfboðaliðar. Við höfðum stórt
veitinga-tjald og trégrind í skúrformi, sem tjaldaö
var yfir, það var búrið okkar, eldaskáli
og dagstofa í viðlögum. Svo var
svefn-tjald fyrir þær, sem ekki höfðu sitt eigið
tjald með fjölskyldu sinni.

Við höfðum 6 eða 7 olíumaskínur og
prímusa og dugði illa til sumar
dag-stundir þegar mikils þurfti við. Má nærri
geta að allt kostaði þetta mikla fyrirhöfn,
fyrst að útvega tjöld, borð og’ bekki og
áhöld öll, — sumt var keypt, sumt fengið
að láni, — að ógleymdum öllum
kökun-um, sem félagskonur bökuðu og fluttu
með sér í blikkkössum. — Já,
flutningur-inn allur, hann var ekkert smáræði, en

þar varð Hvítabandinu vel til eins og
oftar og komst að góðum kjörum fyrir
at-beina þeirra kvenna, er fremst stóðu í
flokki, og með hjálp góðkunningja.

Ekki er því að leyna, að þessi för var
gerð meira af kappi en forsjá, og furidum
við þaS þegar „á hólminn kom", að
nokk-uð brast á að veitingarnar okkar væru
svo ágætar sem skyldi, eða félaginu til
sóma, eins og við hefðum óskað. Einkum
voru það hitunartækin, sem reyndust
ónóg þegar aðsókn var mikil. Einn
dag-inn kom hópur manna og bað um kaffi
„í hvelli", en við vorum ekki viðbúnar
og var kvartað um kalt kaffi og seina
af-greiðslu, og gerði einhver hávær náungi
dálítið veður af þessu.
Frammistöðustúlk-an, sem var þreytt og svefnlítil, stóð
ráðalaus og lá við gráti. Þegar minnst
varði „datt allt í dúnalogn" og í sama
bili heyrðist föst og ákveðin rödd
Sigur-bjargar Þorláksdóttur. Hún talaði hægt
og rólega, en án allrar auðmýktar,
eitt-hvað á þessa leið: „Við biðjum engan að
drekka kaffi hér, þeir, sem eru óánægðir,
geta farið. Ef menn hafa þegar keypt
eitthvað, sem þeim ekki líkar, geta þeir
fengið peninga sína aftur." Örfáir
tjald-gestir fóru út „í fússi", en flestir sátu
ró-legir við samræður unz kaffið kom,
drukku það og þökkuðu með virktum.

Yfirleitt mættum við þakklæti,
nær-gætni og hjálpsemi í þessu umstangi öllu.
Ymsir sögðu við mig síðar: „Gott var að
koma í tjaldið ykkar."

Nú fjölyrði ég ekki frekar um veitingar
okkar og vinnubrögð. Heildarminningin
um þessa yndislegu vordaga og nætur er
mér dýrmæt eign, sem ekki verður frá
mér tekin. Svo er um allar góðar endur-

hvítabandið 1 1

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 08:38:19 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hvitband50/0029.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free