- Project Runeberg -  Andvökur. Eftir Stephan G. Stephansson / V. 1908-1923 /
147

(1909-1923) Author: Stephan Guðmundsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

Lokka, kúga, lofa, rægja, hóta
Liðveizlum og tortíming og hefndum.
Öllum heimi steypa vilja í vítið
Versta með sér. Illviljaðri hinum
Ríka manni, í kvölum sinna klækja
Kappkostaði, að forða bræðrum sínum
Frá því, sem hann sjálfur varð að líða.
Sagan um það jafnvel þó sé rugluð,

Það hefir aldrei rúm í víddum Vítis
Verið fyrir smæsta þel af mannúð.

Hver hafa orðið forlög foringjanna
Fáu, þeirra er ekki hafa brugðið
Friðarmæli sín, og vildu ei svíkja
Sannleikann í voða? Einn1) er myrtur,
Annar2) fyrir sömu sök er gerður
Svívirðing í eigin hóp og dæmdur,
Yfirgefinn rænulaus af raunum
Reikar nú sá þriðji3) um grafarbakkann.
Jafnvel sjálfur Rómverjinn, sem ríkir,
Rógsbræðrunum storkar: Sjáið manninn!

Helzt við aumkvum þá, sem drepnir deyja,
Deyja og falla, og hafa skemst að bera.
Hatrið alt og eymdin, sem að lifir
Eftir, væri tífalt hörmulegri.

Eg að einni huggun hvarflað huga
Hefi stundum: þeirri, ef morðsótt þessi
Legði í valinn heimamann úr húsi

1) Jean Jaurés — 2) Llebknecht — 3) Keir Hardie.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 02:15:36 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/andvokur/5/0151.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free