- Project Runeberg -  Eimreiðin / I. Ár, 1895 /
10

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Járnbrautir og akbrautir

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

vegagjöröinni, svo hún samsvari kröfum timans, lata
flutnings-mennirnir þá skipun halda sjer i öllu verulegu, er komizt hefur
á síðan vegalögin frá 1851 vóru lögleidd, sem grundvöll undir
fyrirkomulagi á þjóðvegagjörð bæði rikisins og sveitarfjelaganna.
Það er gefið í skyn, að gera megi ráð fyrir um miljón króna tillagi
úr rikissjóði á ári til smábrautanna. Með því menn nú hafa fundið
til þess, hve óheppilegt það skipulag er i vegagjörðinni, að
sveita-vegir og þjóðvegir lægju undir sína yfirstjórnina hverjir um sig,
og að þjóðvegirnir væru lagðir af verkfræðingum, sem sendir væru
frá skrifstofu vegagjörðastjórans í Kristjaníu, er hvorki þekktu neitt
verulega landslag hjeraðsins nje flutningsþarfir þess, þá hafa menn
í þessu nýja smábrautafrumvarpi leitazt við að koma því svo fyrir,
að allar samgöngubætur hvers amts lægju undir einn
amstverk-fræðing, er bæði væri kunnugur öllum staðháttum og vel að sjer
t hagvirkjafræðinni, og gæti því bæði gert áætlun um kostnað og
legu smábrauta og vega og komið fram með uppástungur um,
hvort heppilegra mundi vera á hverjum stað og í hvert skipti.
Með þessu móti kemst fyrst eining, afl, samhengi og hagsýni í
samgöngubætur hvers hjeraðs.

Þótt nú sú framtíð sje mikil, sent hinar ódýru eimreiðabrautir
nútimans loksins virðast ætla að færa yfir land vort sem önnur,
þá bendir þó hugsunin um að nota hina fjölmörgu fossa vora til
þess að framleiða rafmagn ósjálfrátt til ef til vill enn þá meiri
framfara bæði i iðnaði vorum og járnbrautagjörð. Hver veit! Það
verður ef til vill ekki svo langt þess að bíða, að rafmagnsbraut sú,
sem nú liggur gegnum götur höfuðstaðarins, eignist ntargar systur
út um sveitir vorar. Hið furðulega og dásamlega fjölhæfi
rafmagns-ins getur ef til vill hleypt upp dugandi, framtakssömu og velnregandi
fólki í óbyggðum (eyðimörkum), þar sem engir nerna veiðimenn og
hjarðsveinar hafa hingað til hlustað á hið tilbreytingalausa kvæðalag
fossanna.

Svo mikið geta góð samgöngufæri gert að verkum.

Ofanrituð grein er skrifuð í Noregi og á við Noreg. En
skyldi ekki líka að ntörgu leyti rnega heimfæra hana upp á Island?
Skyldu ekki Islendingar lika hafa gott af að glöggva sig á því,
hvort þeir hafi ráð á að »sóa burt« of fjár í akbrautagjörð, þegar

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:04:00 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1895/0016.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free