- Project Runeberg -  Eimreiðin / I. Ár, 1895 /
11

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Járnbrautir og akbrautir

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

hægt er að fá margfalt betri samgöngufæri fyrir hjer um bil sama
verð? Við erum þó, hamingjunni sje lof! loksins komnir svo langt,
að það er ekki lengur dlitin hrein og bein óhæfa að hugsa um
járnbrautagjörð á Islandi. Jæja, nokkuð er nokkuð; þetta er þó stig
í áttina, þó lítið sje.

Sumir Islendingar hafa látið í ljósi, og jafnvel verið brytt i
því í blöðunum, að síðasta alþingi hafi varið allt of miklum tima til
að ræða járnbrauta- og siglingafrumvarp það, er lá fyrir þinginu.
Vjer verðum að vera d nokkuð annarri skoðun um það. Þótt það
frumvarp verði aldrei að lögum, þá hefur þeim tima og því fje,
sem gengið hefur til þess að ræða það, verið vel varið. Einmitt
það kapp, sent kom í umræðurnar, hefur vakið Islendinga almennt
til þess að hugsa um málið; og að vekja heila þjóð til að hugsa
um það mál, sem hefur meiri þýðingu fyrir hana en nokkurt annað
mál, það er ekki lítils virði.

Og hvað af öllum þeim mdlum, sem alþingi á um að fjalla,
getur haft meiri þýðingu en samgöngumálið ? Það er nú almennt
viðurkennt, að samgöngurnar sjeu hyrningarsteinninn undir allri
velmegun og framförum hverrar þjóðar sem er. Þær eru Jaað fyrsta;
allt annað kemur d eptir: atvinnuvegirnir blómgast, fólksfjöldinn
og velmegunin eykst, menntir, vísindi og listir taka að dafna og
frelsi manna og sjdlfstæði vex. Allt þetta er sem ein samanhangandi
keðja, þar sem hver hlekkurinn tekur við af öðrum. Sje fyrsti
hlekkurinn hrdkasmíði, verður öll keðjan eptir því. Og það er
enginn vafi d þvi, að samgöngurnar ber að skoða sem fyrsta
hlekk-inn; þær eru undirstaðan, sent fyrst verður að hlynna að og mesta
rækt við að leggja, því upp af henni spretta allar aðrar framfarir.
Fátæklingurinn, sem jafnan er upp á aðra kominn, getur aldrei
orðið fullkomlega sjdlfstæður nje frjáls. Vísindi og listir geta aldrei
þrifizt hjd mjög snauðri og fámennri þjóð. Fólksfjöldinn og
velmegunin getur ekki aukizt aS mörkum nema atvinnuvegirnir sjeu
í góðu lagi. Verulegar framfarir í atvinnuvegunum geta ekki dtt
sjer stað, nema samgöngurnar sjeu góðar og greiðar. Eða með
öðrum orðurn: skilyrðið fyrir öllum verulegum framförum er aukið
auðmagn, peningarnir: »afl þeirra hluta, sem gjöra skal«. En
skil-yrðið fyrir þvi, að auðmagnið geti aukizt í landinu, eru miklar
og góðar samgöngubætur, þvi það er dagsanna, sem hinn norski
járnbrautafræðingur segir í framanskráðri grein sinni, að sú þjóð,

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:04:00 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1895/0017.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free