Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
6o
Pegar jeg kom til Winnipeg, stóð svo á, að par var haldin
fylkis-sýning og fjöldi aðkomandi manna i bænum. Var þvi ekki til pess aö
hugsa að fá herbergi i gistihúsum, þvi pau vóru öll troðfull. En jeg
var ekki á flæöiskeri staddur fyrir því, því aö báöir ritstjórarnir buðu
mjer húsnæöi, og eins Oddbjörg Björnsdóttir, og afrjeö jeg aö þiggja
boö hennar. Haföi hún útvegaö mjer bústaö hjá íslenzkum hjónurn,
sem bjuggu i næsta húsi viö heimili hennar, Mr. Benson (frá
Stóru-völlum í Báröardal) og konu hans (dóttur Arngrims málara, sem margir
kannast viö). Bjó jeg hjá þeim hjónum bæöi í pað sinni og hin tvö
síðari skipti, er jeg dvaldi i Winnipeg, og undi mjög vel hag mínum.
Vóru húsakynni hin prýðilegstu og húsbúnaöur allur svo vandaður, aö
slikt mundi þykja fyrirmynd hjer i Khöfn. Eru og hjónin sjálf hin
mestu myndarhjón og eins dóttir peirra upp komin. Þaö sá og á, aö
ekki höfðu pau skilið gestrisnina eptir, er pau fluttu úr átthögum sinum,
pvi ekki var viö paö komandi, aö pau þægju eins eyris borgun fyrir
veru mína hjá þeim.
í Winnipeg dvaldi jeg i petta sinn tvær nætur og notaöi jeg timann
til pess aö heilsa upp á ýmsa kunningja og skoöa bæinn. Hitti jeg par
marga landa, sem jeg haföi kynnzt á æskuárum mínum, en sem jeg
haföi enga hugmynd um aö væru par. Einn þeirra var Oddbjörn
Jó-hannesson (hálfbróöir skáldsins Sigurðar Jóhannessonar), sem jeg var einu
sinni nærri drukknaöur meö i smalamennsku nálægt Kagaöarhóli á Asum.
Heimsótti jeg hann tvisvar og haföi gaman af.
Pann 23. skoöaöi jeg sýninguna, sem haldin var i stórum garöi i
útjaðri bæjarins. Mátti par sjá marga hugvitssama vjel og margan
stæöi-legan grip. Eru slikar sýningar haldnar i hverju ári, i Winnipeg fyrir
allt fylkiö, en auk pess smærri sýningar i hverjum hinna minni bæja.
Hafa sýningar pessar ekki smáræöis pýöingu, til pess aö opna augu
manna fyrir framförum i búnaöi og endurbótum á akuryrkjutólum, enda
eru pær vel sóttar, og kaupa menn á þeim nýjar vjelar og gripi til
kynbóta.
Sama kveldiö vórum viö Porsteinn boönir til sira Jöns Bjarnasonar,
og var par saman safnaöur fjöldi milsmetandi landa, bæöi úr bænum og
utan ür sveitum, sem komiö höfðu á sýninguna. Skorti par hvorki
veit-ingar nje skemmtilegar samræöur, enda eru bæöi hjónin, sira Jón og
frú Lára alkunn aö rausn. Sira Jóa er eins konar kóngur eða öllu
heldur pdfi peirra Vesturislendinga, enda hefur hann og marga þá kosti
til aö bera, sem góður fyrirliöi parf aö hafa. Hann er gáfumaður mikill,
vel menntaöur og hinn djarfasti, en einrænn pykir hann i trúarskoðunum
og haröur i born aö taka, pegar pvi er aö skipta. En slikt bar ekki á
góma okkar á milli, og haföi jeg pvi ekki annaö af honum aö segja
en hina mestu ljúfmennsku. En hvaö sem segja má um trúarofsa sira
Jóns, sem i rauninni er i pvi einu falinn, aö hann fylgir fast fram öllum
kreddum kirkjunnar, eins peim, sem nú eru taldar úreltar af flestum
menntuöum mönnum, og berst gegn peim, sem á móti mæla, alveg
samkvæmt prestaeiöi sinum, pa er po paö vist, aö sira Jon og hans
liöar eiga miklar pakkir skildar fyrir pann mikla áhuga og alúð, sem
peir leggja a aö viöhalda islenzkri tungu og pjóöerni par vestra, og yfir
höfuö aö efla i öllu vöxt og viögang landa sinna — á íslenzkum grund-
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>