- Project Runeberg -  Eimreiðin / III. Ár, 1897 /
61

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

61

velli. Má þar meðal annars nefna baráttu þeirra fyrir stofnun islenzks
bókasafns og háskóla, og þótt þar sje við ramman reip að draga, eru
þó ólíkt meiri líkur til, aö slík stofnun geti komizt á og þrifizt í
Am-eríku, heldur en heima á Islandi sjálfu. Oska jeg þvi máli hins mesta
gengis, því sú stofnun gæti óefað haft mikla þvðingu fvrir íslendinga
bæði vestan hafs og austan.

Winnipeg er höfuðstaður Manitoba og ganga þaðan járnbrautir í
allar áttir. Par situr stjórn og þing fylkisins og þar eru hinar helztu
menntastofnanir. Er bærinn mjög ungur og hefur þotið upp á fám árum.
Er ibúatalan nú um 40,000, og segja sumir, að þar muni búa um 4000
Islendinga, en aðrir segja þá nokkru færri. Mun enginn vita vissu sina
i þvi efni. Reka Islendingar þar alls konar atvinnu, mjög margir verzlun.
Par eru 3 islenzkar kirkjur og þar koma út 2 stór islenzk blöð og 3
timarit. Nokkur unglingsbragur er enn á bænum. Pamiig eru flest húsin
úr timbri og flestar götur óflóraöar. Eru þær pvi mjög illar yfirferðar
i rigningum. Fram með húsaröðunum liggja háir trjápallar, sem notaðir
eru sem tá, en jafnvel á þeim er varla stætt i rigningum, því þegar
aurleðjan frá strætunum berst á þá, verður mjög hált á þeim. Bærinn
er að sönnu upplýstur með rafmagnsljósum, en ljósin eru þó viðast hvar
svo strjál, að mikils er i vant, að vel megi heita lýst. Rafvagnar ganga
fram og aptur um bæinn, og er i þeim mikil bót, með þvi bærinn er
víöáttumikill, einkum par sem farið á vögnunum er ódýrt. Aðalstræti
bæjarins er steinlagt, breitt og fallegt, og par eru miklar og smekklegar
byggingar. Lystigarðar eru i bænum og ár renna í gegnum hann. Búðir
eru i Winnipeg stórar og fallegar, og vörur i þeim fullt eins glæsilegar
og í öðrum stórbæjum. Það þótti mjer og undrum sæta, hve allur
hús-búnaðnr var prýðilegur, jafnvel rikmannlegur, hjá þeim fslendingum, sem
jeg heimsótti par, jafnvel hinum fátækari. Var hann mun betri en almennt
gerist hjá sams konar fólki hjer i Khöfn.

Um miðjan dag pann 24. júli hjeldum \’ið forsteinn í fylgd með
Guðmundi bróður mínum með eimlest vestur til Argyle og komum til
Glenboro kl. ó1^ siðdegis. Var þar fyrir á brautarstöðinni, til þess að
taka á móti okkur, móðir mín, Valdis Guðmundsdóttir, og stjúpi, Simon
Simonsson, ásamt yngstu systur minni, Guðrúnu, sem jeg nú sá i fyrsta
skipti. Má nærri geta, að þar hafi orðið fagnaöarfundur, cr svo langt
var um liðiö frá því jeg haföi sjeð þetta ættfólk mitt. Frá Glenboro
ókum við á tveim vögnum heim til þeirra, og var það um tveggja
klukkustunda ferð. Var þar fvrir Kristiana systir min (gipt Erlendi
Gisla-syni úr Húnavatnssýslu) og börn hennar. Settist jeg um kyrt hjá móður
minni, en Porsteinn var ekki nema blánóttina, og sneri aptur til
Winnipeg næsta dag.

I Argyle (frb. Argæl) dvaldi jeg vikutima og notaöi jeg þann tima
svo vel sem kostur var á, til pess aö skoða byggðina og kynnast fólki
og högum þejs. Var jeg allar nætur hjá móður minni, nema pá siðustu
hjá Guðmundi bróður minum. Pann 26. var jeg við kirkju, og var þar
saman kominn svo mikill mannfjöldi, að kirkjan gåt ekki tekið við öllum,
og er hún pó allmikið hús. Seinni partinn komu nokkrir gestir heim
til okkar og skemmtum við okkur við samræður lengi fram eptir
kveld-inu. Pann 27. heimsóttum við meðal annara Skapta Arason (úr Ping-

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:04:18 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1897/0071.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free