- Project Runeberg -  Eimreiðin / III. Ár, 1897 /
69

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

69

N. Porláksson, sem þar er prestur hjá norskum söfnuði og býr í næsta
húsí við lækninn. Hann er skýr maður og einbeittlegur; giptur norskri
konu. Bústaður Móritz læknis er hinn prýðilegasti, með fögrurn
blórn-skrýddum garöi umhverfis, og húsgögn öll mjög ríkmannleg. Er M.
mektarmaður þar í sveit, í miklu áliti sem læknir og hefur stórtekjur,
svo að nema mundi um 7000 dollara (um 26,000 kr.) árlega, eptir þvi
sem kunnugur maður sagði mjer.

Þann 6. dvöldum við mestan hluta dags bjá lækninum, og kom
síra Friðrik Bergmann þangaö í hópinn seinni partinn. Um kveldið
lögðum við af stað meö honum til Gardar á tveitn vögnum, og fylgdu
læknirinn og Lárus Arnason okkur þangað. Gistum við þrir þar hjá
prestinum, en M. og L. hjeldu heim aptur um nóttina. Þó sátum við
allir lengi fram eptir nóttu og skemmtum okkur við samræður. Síra
Friðrik er fjörlegur maður og hvatlegur og skin áhugi og kapp út úr
andliti hans og öllum hreyfingum, enda þykir hann engu vægari í
kenn-ingum sínum en sira Jón. Hann á bókasafn mikiö og gott og munu í
því flestar íslenzkar bækur, sem nokkuð kveður að. Hús hans er nýtt
og fallegt með stórum trjágarði umhverfis og i blómreitir, sem hjá
Iækninum. Hann er giptur Guðrúnu, dóttur Magnúsar prests Thorlacius
(úr Skagafirði) og eiga þau nokkur börn. Tóku bæði hjónin mjer með
hinni mestu ljúfmennsku, og gestrisnina ekki um að tala. Hún er
ann-áluð á Islandi, en ekki reyndist mjer hún minni hjá Vesturislendingum,
þeim sem jeg kom til.

Næsta dag (7.) kvöddum við prestsetrið, eptir að viö höfðum tekið
okkur árbit hjá frúnni, og fórum allir 4 að hcimsækja Eirik Bergmann,
fyrv. þingmann i öldungadeild Dakotinga. Býr hann þar í grcnd og er
hús hans mikið og rikmannlegt. Par neyttum við dagverðar, og hjeldum
svo á þremur vögnum norður aila islenzku byggðina, sira Jón, Sigtryggur,
Eirikur, sira Friðrik, jeg og einn maður enn, sem jeg ekki man að nefna.
Var þá vel áfram haldið, enda fjörugum fákum fyrir beitt. Sat jeg i
vagni með síra Friðrik, og var það sjáleg skepna, sem hann dró, hinn
mesti fjörgammur, sem kostað hafði ærið fje, en prestinn ekkert, því
hann hafði þegið bann að vingjöf frá nokkrum af sóknarbörnum sinum.
Okum við þann dag til kvelds og komum víða við á leiðinni (Eyford,
Mountain, Hallson, Akra o. s. frv.) og sátum að náttveröi hjá Nikulási,
hálfbróður síra Jóns, sem býr á Hallson. Höfðum við hitt dóttur hans
á Mountain, og þótti því kynlegt að sjá hana heima fyrir, er við komum
til Hallson, jafnhraða ferð og við höfðum. En hún hafði brugðið við,
meðan við stóðum við á Mountain, og ekið allt hvað af tók, til þess
að geta tekið á móti okkur heima hjá sjer.

Seir.t um kveldið komum við í rökkri til Cavalier, því þangað var
feröinni heitið, til þess að heimsækja þá málaflutningsmennina Magnús
Brynjólfsson og Daniel Laxdal, enda var mannlega tekið á móti hjá
þeim. Sátum við allir lengi fram eptir hjá þeim i húsi Laxdals (hann
er giptur, en Magnús ekki) við samræður og drykkju. Sá ekki á, að
við værum staddir í ríki, þar sem bannað er aö selja vinföng (því svo
eru lög i Dakota), þvi »kampavinið« flóði þar i öldum og nóg önnur
vin á boðstólum lika. Eru peir Laxdal og Magnús mjög fjörugir og
skemmtilegir menn og í miklu áliti. Taka þeir mikinn þátt i pólitik,

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:04:18 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1897/0079.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free