- Project Runeberg -  Eimreiðin / III. Ár, 1897 /
103

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

103

Tobías hafði raunar ekki getað áttað sig á þessu tilviki í
bráð-ina, var kominn út á fjörð, áður en hann gat náð áttunum.
Sigl-ingin sóttist fljótt og vel; hann var kominn nokkuð út fyrir
Grá-hólma, þegar hann fyrst fór að sjá, að nú hafði þaS fyrir hann
stigið, sem hann aldrei áður hafði getað hugsað sjer, að nú var
ekki stefnt einungis í »hreppskassan,« heldur öllu fremur beint i
kolsvartan kjaptinn á hegningarhúsinu. Og í sömu andránni sá
hann segl blika við á eptir sjer; þekkti undir eins að það var
sex-æringurinn, sem festur var áðan við vöruhúsbryggjuna. Það var
eflaust utanbúðarmaðurinn að elta hann. Tobias herti betur á
seglinu, og báturinn fleygðist með öllum seglum i rjúkandi
sæ-drifinu.

Tobías vissi vel, að nú var gamla fúna bátnum fullsiglt; það
mátti ekki herða meira á þessu lekahripi, nema til þess hann steypti
sjer þvert niður i bárudjúpið.

Orskreiður og mjúkur í báruflaumnum rann hinn á eptir og
reisti hátt trjónuna, eins og ólmur graðhestur; drifthvíta seglið
varð allt af stærra og stærra í augum Tobíasar.

En þá tók lika Tobias seinasta úrræðið; um leið og hann
beygði fyrir andnesið og hvarf sjónum þeirra, beitti hann meir í
veðrið, og ætlaði sjer svo að smjüga inn á milli skerjanna. Það
hefði líka sjálfsagt heppnazt, ef ekki hefði um leið komið
skyndi-legur sviptibylur. Hann kom eins og örskot ofan úr hjáfjalli, beint
i seglið og sneri öllu í einum rykk, en særokan stóð í háa lopt,
þar sem hann þaut eptir þverum firðinum.

Tobías greip dauðahaldi um leið og bátnum hvolfdi, og taldi
sjer dauðan vísan, — það var líka það allra bezta úr því sem komið
var. Hann var viss um að báturinn sykki eíns og steinn; það
var óhugsandi að þetta sollna fúna skrifli flyti.

Hann varð alveg forviða, þegar sd varð raunin á, að báturinn
flaut, og það meira að segja flaut sjerlega vel; þá var hann heldur
ekki svipstund að komast á kjölinn og riða þar klofvega yfir.
Það var likt og myllusteinn hefði verið leystur af hálsi honum, —
nú var þó mjelpokinn niðri á mararbotni.

Þegar sexæringurinn kom fyrir nesið og þeir sáu, hvernig
Tobias var staddur, hviuðu þeir allir af gleði. En eiginlega varð
þeim ekki þessi ferð til fjár; •— þeir máttu þó til, að bjarga
honum, húðarselnum, sem reið á kjölnum,

Þeir fengu fyllilega að sanna, að það lifir lengst, sem mönn-

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:04:18 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1897/0123.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free