- Project Runeberg -  Eimreiðin / III. Ár, 1897 /
217

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

217-

og stirðum höndum komið geta í kross.
En móðirin á knjánum kraup og reyndi
að beygja barns síns arm um háls ins dána.
»Hún er ei lengur okkar,« kveinar konan.
»Hann hefur hana keypt með köldum dauða,
og lætur aldrei litlu Grjetu frå sér.
Og það er gott hún getur beðið Jesus
að biðja okkur friðar fyrir glæpinn
við föðurinn, þvi fyrir honum klagar
hinn gamli, góði maður.«

Köllunin.

(Eptir Wergeland).

Voldug örn með vænginn brotinn
Veslast upp i kotungsbæ,
frá þvi hün var forðum skotin
fjötruð eins og rakkahræ,
ella væri’ hún óðar þotin . .

hennar sál
þó á skárra en skáldsins andi,
skorðaður hjá pindri þjóð
yzt á heimsins eyðislóð,

með það mál,
sem í öll sín listaljóð
heldur eins og hund i bandi.

Hann er kirkjuklukka vafin
köldu, blautu duluraski;
hann er rósargreinin grafin
gömlum undir mæliaski.
Sinum væng að vilja lypta,
vera hár og fleygur andi
eins og sá sem guðleg gipta
gjörir skáld í stóru landi:
það er eins og ætla að fljúgja,

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:04:18 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1897/0243.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free