- Project Runeberg -  Eimreiðin / IV. Ár, 1898 /
27

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

27

hjónaefnin ættu fyrir utan hversdagsklæðnað sinn að minnsta kosti
hund-rað (120) lögaura (= 60 kr., er mundi samsvara hjer um bil 600 kr.
eptir gildi peninga nú). Færi giptingin fram, án þess að hjónin ættu
þessa fjárupphæð, þá varðaði það fjörbaugsgarð og skyldu þau fara af
landi á brott og eiga eigi apturkvæmt, nema fje þeirra yxi svo, að J>au
ættu hundrað eöa meira, eða konan hefði náð þeim aldri, að hún væri
ekki lengur barnbær. Pó var enginn fjeránsdómur háður yfir þeim, sem
öðrum fjörbaugsmönnum, nje fje þeirra gert upptækt, og þau máttu koma
heim aptur jafnskjótt og fyrgreind skilyröi vóru fyrir hendi. A hinum
fyrri hluta þjóðveldistímans mátti og slíta löglegu hjónabandi sökum
fá-tæktar hjónanna, bæði af frjálsum vilja að tilhlutun sjálfra þeirra, og
einnig að þeim nauðugum eptir kröfu þess ættingja, er næst stóð að
framfæra börn þeirra. En seinna kom þó kirkjuvaldið þvi til leiðar, að
þessi ákvæði um bjónaskilnað sökum fátæktar vóru úr lögum numin.
Af sömu ástæðum var og bannað að skipta manneldi þannig á hendur
bændum, að saman yröu karlmaður og kona barnbær hjá sama
bónd-anum í einu. Ennfremur var og skipamönnum, er áttu búðir við
strönd-ina, bannað að ala barnbærar konur, jafnvel þó þær væru
innanhrepps-ómagar. Þá var og sjerhverjum vermanni stranglega bannað að hafa
barnbæra konu i fiski með sjer, nema hann gæti sjeð þeim báðum fyrir
nægilegri atvinnu, og varðaði fjörbaugsgarð fyrir þau bæði, ef út af var
brugöið. Bæði þessi síðastgreindu ákvæöi verður eðlilega að skilja svo,
að menn hafa verið hræddir um, að það kynni að hafa miður
heppi-legar afleiðingar, ef barnbærar konur ættu samblendi við farmenn og
sjómenn, sem opt þykja fremur ljettúðarfullir.

Eins 0g menn reyndu að afstýra því, að skipstjórar flyttu ómaga
inn x landið, eins reyndu menn og að losa landið við framfærslu
óskil-getinna barna, er útlendingar höfðu getið meðan þeir dvöldu á Islandi.
Pegar norskur maður eða úr öðru nálægu landi haföi átt lausaleiksbarn
á Islandi, og svo heppilega vildi til, að hjer á landi var staddur maður
úr sama hjeraði og faöirinn, og lá búinn til heimferðar, þá gátu menn
flutt barnið á hendur honum, og varð hann þá, ef hann vildi sleppa
óhegndur, að taka við þvi og ferja það gegn 10 (lög)aura þóknun.
fó var hann því að eins skyldur til þess, að fje hans næmi að minnsta
kosti 6 hundruðum (720) álna (= hundrað lögaurum = 60 kr. 3: um
600 kr.).

Sjerstaklega þýðingarmikil vóru þau ákvæöi, er miöuðu til þess að
afstýra flakki (húsgangi, verðgangi), því þau vóru svo hörð, að það var síður
en ekki árennilegt aö leitast við að lifa á bónbjörgum, er menn vóru
full-færir til að vinna fyrir sjer. Þessi ákvæði vóru þó eigi að eins miðuð
við það, að slíkt flakk bæði svipti þjóðfjelagið nauðsynlegum vinnukröpt-

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:04:26 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1898/0033.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free