Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
57
heldur napurt, og færði brjefritarinn þar, af efni og búningi fyrra
brjefsins, sönnur á, að enginn annar en karlmaður hefði getað
skrifað brjefið; jeg hlyti að vera ljelegur sálarfræðingur. En
eptir-máli brjefsins var svona: »Reyndar get jeg trúað yður fyrir því,
að kvennmaður hefur skrifað brjefið«.
Hinn ónafngreindi brjefritari var Amalie Alver, seinna gipt
danska höfundinum Erik Skram.
Hún var orðin roskin þegar hún byrjaði að rita; hið fyrsta,
sem hún ritaði, var óviðfeldið sakir hrottalegrar náttúruhyggju,
og það leið á nokkru, áður hún varð það, sem siðlátt fólk kallar
lesandi. Eptir á er nú þetta hin öflugasta sönnun þess, hve
frum-leg hún er. Fet fyrir fet hefur hún hamrað, sprengt og pælt sjer
braut, og þannig gengið sína eigin, erfiðu leið. Þann vilja og
þrek, sem til þess þurfti, hefur hún varla fengið hjá eiginmanni
sínum, nje nokkrum öðrum manni, — ekki fremur enn gáfur sínar
og þá list, sem nú er sjereign hennar. Það stendur nú á sama,
hve mörg af ritum hennar eru sjálffundnar athuganir, og ekkert
annað. Aöalatriðið er, að þetta hefur gert hana færa um að rita
aðra eins skáldsögu og »Svikin«, sem er snildarverk, bæði að því,
hve djúpt hún ristir í skilningi á sálarlifinu og hve framsetningin
er hrífandi; áhrif þeirrar sögu eru eins og værir þú staddur úti á
hafi og horfðir niður í það og mættir augum, stórum, stórum;
höfuðið yrði ekki ljóst greint, en augun opnuðust og lykjust
aptur, opnuðust og lykjust aptur, köld eins og hafið.
Það eru heimsbörnin, eða hinn veraldlegi hluti mannsins,
sem hún sýnir; sjaldan sunnudagshlutann í þeim, aldrei
sunnu-dagsbörnin. Með hinu fyrnefnda á jeg við vort æfilanga þrælalif
í þjónustu ástríðanna og atvikanna, þar sem vjer berjumst meira
og minna árangurslaust. Með hinu á jeg við pau öfl i oss, sem
gjöra oss unnt að hefja oss upp yfir flest eða jafnvel allt. Af því
að hún einkum sýnir veraldlegu hliðina, er lágur og gráskýjaður
himinn yfir myndum hennar. I þvi líkjast þær hinum
óviðjafnan-legu, dáleiðandi listaverkum Gerhards Hauptmanns, sem ginna oss
æ lengra og lengra inn í langa flösku, og svo heyrum vjer, að
tappinn er rekinn í að baki oss, og oss verður að hugsa: Guð
minn góður! hvernig komumst við nú út aptur? Amalie Skram
er liðugri í snúningunum; vjer komumst greiðlegar áfram, og það,
sem fyrir augun ber, er fjölskrúðugra; en dapurleikinn, sem það
skilur eptir i huga vorum, er nokkurn veginn sá sami.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>