- Project Runeberg -  Eimreiðin / IV. Ár, 1898 /
74

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

74

ingsiþróttinni eins og i sjálfu efninu, i hárfinum orðaleik og hinu innra
sambandi oröa og setninga, sem vekur unað hjá innfæddum lesendum,
en hætt er við aö dyljist flestum útlendingum meir eöa minna.

En þótt örðugleikarnir hafi verið miklir, þá hefir bok Poestions
tekizt mæta vel. Paö er enginn fljótfærnisblær á henni, heldur ber allt
vott um hina mestu vandvirkni og samvizkusemi. Hann hefir kynnt
sjer allt, sem ritaö hefir verið um nútiðarbókmenntir vorar, bæöi á
is-lenzku og útlendum málum, og hann hefir leitaö svo vandlega, aö manni
veröur opt aö veröa forviöa yfir því, hvaö hann hefir getaö snuöraö
uppi (t. d. smáathugasemdir i dagblööum o. s. frv.). En hann hefir ekki
látið hjer viö lenda. Þegar hann hefir þótzt ‡>urfa aö fá eitthvaö frekar
aö vita, en hann gåt sjeö i bókum, þá hefir hann snúiö sjer til ýmsra
islenzkra fræöimanna og spurt þá spjörunum dr. Einmitt fyrir þá sök
eru i bok hans ýmsar upplýsingar, sem hvergi eru til annars staöar á
prenti.

En £>aÖ er ekki nóg meö þaö, aö höf. hafi gert sjer allt far um
aö ná i allt, sem eitthvaö var á aö græöa fyrir bok hans. Hann hefir
líka sýnt lofsveröa viöleitni á aö vinza úr því og nota þaö eina, er
bezt væri og rjettast. Auövitaö hefir hann ekki sjålfur komizt yfir aö
lesa öll þau rit og kvæöi, sem hann getur um og leggur dóm á, og
þvi opt oi’öiö aö byggja á frásögn og dómnm annara. En þá er
vand-inn aö vita, hverjum fylgja skal, ef dómarnir eru misjafnir. En höf.
hefir aö jafnaöi tekizt vel aö ráða fram úr þvi, og dómar hans eru þvi
yfirleitt svo rjettir, sem til veröur ætlazt meö nokkurri sanngirni.
Auövitaö kemur það fyrir, aö vjer getum ekki veriö dómum hans
fullkom-lega samþykkir, en vjer veröum hins vegar aö játa, að hann hefir þá
jafnan fylgt því, sem hann haföi ástæöu til aö álíta rjettast og
áreiöan-legast. Aptur eru þeir dómar, sem hann auðsjáanlega byggir á eigin
rannsókn, miklu öbrigöulli. Fyrir kemur og J)aÖ, aö höf. fyrst skýrir
frá dómi annara um eitthvert skáld, en kveöur svo aö lokum upp sinn
eigin dóm og hittir þá aö voru áliti einmitt hiö rjetta (t. d. um Stefán
Ólafsson). Sumstaöar er þó eins og hann hiki sjer viö aö risa öndveröur
gegn dömi annara, þó sjá megi, aö hann sje á annari skoðun og henni
rjettari, Er slikt næsta skiljanlegt og sýnir varfærni höfundarins og hve
annt honum er um, aö gjalda varhuga viö aö halla rjettu máli. Það
er engin furöa, þó hann hafi ekki ætiö treyst sjer til aö ganga i
ber-högg viö dóma nafnkunnra Islendinga.

Hinar þýzku þýöingar á sýnishornunum eru eptir hina og þessa,
en þó langflestar eptir Poestion sjálfan. Þær hafa, aö því er vjer fáum
sjeö, yfirleitt tekizt mjög vel og gefa góða hugmynd um frumkvæöin.
far viö bætist og, aö höf. hefir aö öllum jafnaöi veriö mjög heppinn i
vali sýnishornanna, enda hefir hann i því efni haft þann ráðanaut, sem
til þess er trúandi, aö kunna úr aö velja, nefnilega skáldið Steingrim
Thorsteinsson.

Bókin er aö ytra frágangi prýöilega úr garöi ger. Pö hafa ekki
allfáar misletranir og prentvillur slæözt inn i hana, einkum i stafsetning
islenzkra nafna og oröa; en þær eru þó i rauninni miklu færri, en búast
heföi mátt viö, þar sem höf. hefir ekki getaö notiö aöstoöar neins
ís-lendings viö prófarkalesturinn. Úr flestum þessum villum er bætt i

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:04:26 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1898/0080.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free