- Project Runeberg -  Eimreiðin / IV. Ár, 1898 /
79

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

79

fylgir góð. Að eins er rjettritun og prófarkalestri mjög ábótavant. Mætti þar
til nefna mörg dærai, en vjer skulum låta oss nægja eitt, orðið »ólykt«, sem
er ritað óligt (bls. 53). V. G.

ÍSLAND OG ÍSLENZKAR BÓKMENNTIR ERLENDIS:

í LÆKNISFRÆÐI hefur læknaskólakennari Guðmundur Magnússon ritað
grein í »Hospitalstidende« 1897 (»Tuberculosis humeri et scapulæ. — Fjernelse af
humerus og scapula. — Helbredelse«), og lýsir hann þar sjúklingi einum, er
þjáðist af berklaveiki, og afarhættulegum holdskurði, er hann gerði á honum
29. apríl 1896. Hafði sjúklingurinn áður verið holdskorinn af landlækni
Schier-beck (1894) og í annað sinn á »Royal Infirmarj’« í Edínborg (3895), án þess að
fá bót meina sinna. En eptir holdskurð G. M. batnaði honum og gåt hann
gengið á gagnfræðaskóla þegar næsta vetur. Það mun óhætt að fullyrða, að
þetta sje einhver sá mesti holdskurður, sem gerður hefur verið á Islandi, og
stórmikil furða, að sjúlkingurinn skyldi halda lífi. En þaö er fátt, sem góðum
læknum er ómögulegt nú orðið, þar sem þeir geta komið hnífnum að.

í NÁTTÚRUFRÆÐI hefur cand mag. Bjarni Sœmundsson ritað grein í
»Videnskabel. Meddel. fra den naturhist. Foren. i Khöfn« 1897 dýrafræðislegs
efnis (»Zoologiske Meddelelser fra Island«). Skiptist sú grein í tvo kafla og er
hinn fyrri um náskötuna, en hinn um rostunginn. I kaflanum um rostunginn
tilfærir höf., hvað um rostunginn sje sagt í fornritum vorum, og vitnar þar
meðal annars í »Biskop Rafn Sveinbjarnarsons Saga« og seinna segir um Hrafn:
»Biskoppen døde 1213«. Þetta bendir á heldur mikla fljótfærni. Höf. hefur
tal-ið sjálfsagt, að Hrafn hafi verið biskup, af því að saga hans er prentuð í
Biskupa-sögunum. En þá ætti Áron Hjörleifsson líka að gerast að biskupi^ því ’nans
saga er og prentuð þar. En báðar. þessar sögur eru prentaðar þar sem viðbætir
við Guömundar sögu góða, af því að þær koma svo mjög við sögu hans. Þess
raá geta til leiðbeiningar fyrir höf., að rostungsdráp það, er sagan getur um,
gerðist um 1190. — I »Geografisk Tidsskrift« XIV. hefur cand. mag. Helgi
Pjetursson skrifað fjöruga grein um för sína upp á Baulutind sumarið 1893 (»En
Bestigning af Fjældet Baula i Island«), og eru í þeirri grein ýmsar fróðlegar
jarð-fraeðislegar athuganir.

STJÓRNIN OG EINOKUNARVERZLUNIN (»Den danske regering og den
islandske monopolhandel, nærmest i det 18. århundrede«), heitir ritgerð, sem
sagnfræðingur Jóns Jonsson hefur ritað í »Historisk Tidsskrift* 1897. Rekur hann
þar sögu einokunarveralunarinnar frá byrjun til enda, en þó einkum á 18.
öld-inni. Sýnir hann fram á, að stjórnin hafi hallazt að einokuninni af því, að sú
skoðun var þá almennt ríkjandi í Norðurálfunni, að þessi verzlunarstefna væri
heppilegust fyrir þjóðirnar, en alls eigi af því, að hún vildi nota einokunina til
þess aö fjefletta ísland, enda hafi það sýnt sig, að stjórnin hafi jafnan dregið
taum íslendinga gagnvart einokunarfjelögunum og reynt að veita þeim allar þær
ívilnanir, sem gátu samrýmzt þessari verzlunaraöferð. Að svo eifitt hafi veitt
að koma einokuninni fyrir kattarnef og fá stjórnina til að gera verzlunina frjálsa,
hafi að miklu leyti verið því að kenna, að Islendingar liafi sjálfir — og það
ýmsir af beztu mönnum þjóðarinnar — jafnan mælt á móti því. Verzlunin hefði
meira aö segja líklega verið gerð frjáls að fullu og öllu 1787, ef hinn mikli

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:04:26 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1898/0085.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free