Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
99
menn skyldu eigi skyldir að gjalda hinum sama manni brunabætur
opt-en þrisvar. Af sömu ástæðum var og ákveöið, að ef bóndi rjeði sjer
hjú úr annari þingsókn, skyldi hann ekki skilyrðislaust hafa rjett til bóta
fyrir þann skaða, er slikt hjú kynni að valda, heldur skyldi það, þegar
svo stóð á, vera komið undir frjálsum vilja bænda, hvort þeir vildu
veita J>eim manni, er hjá hafði brunnið, nokkrar brunabætur eða alls
engar.
SVEITARSTJORNIN. Ibúar hvers hrepps kölluöust hreppsmenn og
gåt það orð i rýmsta skilningi átt viö alla, sem áttu heima i
hreppn-um, jafnt ómaga og þurfamenn sem aðra. Optast táknaði þó
»hreppsmenn« að eins þá hreppsbúa, sem þingfararkaupi áttu að gegna, eöa
með öðrum oröum þá, sem höfðu full og óskert þegnrjettindi og þvi
urðu að gegna öllum þeim skyldum, sem þeim vóru samfara.
Stjórn sveitarmálanna var sumpart í höndum hreppstjómar og
sum-part i höndum hreppsþinga, sem höföu álika þýðingu fyrir hvern
ein-stakan hrepp eins og lögrjettan fyrir allt landið.
Hreppstjórnin var nefnd 5 manna, er kölluðust hreppstjórar eða
hreppstjórnarmenn. Þeir vóru kosnir af hreppsbúum á haustin og skyldu
vera landeigendur. Pó gátu hreppsþingin gert undantekning frá þeirri
reglu og þá jafnvel kosið griðmann (p: vinnumann) fyrir hreppstjóra
ef það var samþykkt í einu hljóði. Hreppstjórarnir áttu að skipta
niður sveitargjöldunum: þurfamannatíund matgjöfum og manneldi, og
áttu peir bæði að ákveða, hve mikið hver einstakur skyldi gjalda og
og hverjum þaö skyldi greiða. Þeir áttu og að hafa umsjón með þvi,
aö þessi gjöld væru innt af hendi og kæmu í rjettan stað niður. Auk
þess áttu þeir að höfða mál fyrir öll brot gegn sveitastjórnarlögunum,
aö svo miklu leyti sem þeir, er fyrir órjettinum urðu, höfðu ekki rjett
til þess (t. d. hreppsómagar) eða vanræktu að gera það. Þegar
hrepp-stjórarnir þannig komu fram sem sakaraðilar, kölluðust þeir
hreppssóknar-menn eða blátt áfram súknarmenn, og svo eru jbeir optast nefndir i
lög-unum. En auk þessara 5 hreppstjóra, sem vóru kosnir á haustin, gátu
hreppsþingin á vorin kosið aðra 3 sóknarmenn, til þess að aðstoða
hrepp-stjórana, og þessir þrir sóknarmenn áttu þá einkum að höfða mál fyrir
brot á samkomumálum, fundarsköpum hreppsþinganna, ákvæðum um
boð-un þeirra o. s. frv. Hreppstjórarnir fengu engin laun fyrir starfa sinn, nema
sæmd þá, er stöðunni fylgdi. Peir urðu og að inna öll hin sömu
sveit-argjöld af hendi sem aðrir, og vanræktu þeir skyldur sinar sem
hrepp-stjórnarmenn, urðu þeir að sæta sömu hegningu sem aðrir, er brotið
höföu gegn ákvæðum sveitastjórnarlaganna.
Hreppsþingin vóru tvenns konar: regluleg hreppsþing og
auka-hreppsþing.
7*
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>