- Project Runeberg -  Eimreiðin / IV. Ár, 1898 /
100

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

100

Hin reglulegu hreppsþing kölluðust samkomur. Þau vóru ákveðin
með lögum í eitt skipti fyrír öll og haldin á ákveðnum tímum. Þessi
hreppsþing vóru háð þrisvar á ári, hið fyrsta á langaföstunni, annað á
vorin að afloknu vorþingi og hið þriðja á haustin, og skyldi það ekki
vera fyr en fjórum vikum fyrir veturnætur og ekki síðar en fyrsta
sunnu-dag i vetri. Hreppsþingin skyldu allir þeir hreppsbændur sækja, er
tíund áttu að greiða og þingfararkaupi að gegna; gætu þeir eigi komið
þvi við aö koma sjálfir, máttu þeir þó senda annan mann í sinn stað
(t. d. vinnumann sinn) með fullu umboði til að greiða atkvæði fyrir
þeirra hönd. En væri út af þessu brugðið, þannig að einhver hvorki
kæmi sjálfur nje sendi annan mann i sinn stað, þá varðaöi það 3 marka
sekt. Þeir cinir, sem þannig sóttu hreppsþingin, vóru skoðaðir sem
rjettir samkomumenn og atkvæðisbærir.

Til þess að samþykkja ályktun utn almenn sveitamálefni
(hreppa-mál) þurfti að eins meiri hluta atkvæða samkomumanna; en ályktun um
breyting á fundarsköpum, ákvæðunum um hvenær og hvernig
hrepps-þingin skyldu háö og boðuð o. s. frv. (samkomumál) varð ekki gerð,
nema hún væri samþykkt í einu hljóði. Kosning hreppstjóranna var
og þvi að eins gild, að þeir væru kosnir í einu hljóði. Ef atkvæðin
dreifðust við kosninguna, var skorið úr með hlutkesti. Pegar
samkomu-mennirnir gátu ekki orðið á eitt mál sáttir um það, hvort hreppurinn
skyldi taka einhvern ómaga til framfærslu eða flytja hann á annan hrepp,
þá var svo á kveðið, að þeir skyldu ráða, sem greiddu atkvæði með þvi,
að neita að taka ómagann að sjer og vildu flytja hann til framfærslu í
annan hrepp.

Sumum sveitamálum skyldi ráðið til lykta á ákveðnum
hrepps-þingum. Pannig áttu menn að biðja sjer byggðarleyfis á
langaföstu-fundinum; en hefði umsækjanda af einhverjum ástæðum verið það
ómögulegt, varð hann að minnsta kosti að gera það á vorfundinum. Á
vorfundinum átti einnig að kjósa þá 3 sóknarmenn, sem áttu aö aðstoða
hreppstjórana og sjerstaklega að höfða mál fyrir brot á samkomumálum.
Þá skyldu menn og segja til, hvort menn vildu heldur að menn
ábyrgð-ist með þeim eldhús eða skála, ef hús þeirra brynnu. Á
haustfundin-um var skipt tíund og matgjöfum og þá vóru hreppstjórarnir kosnir.
En annars hafa menn sjálfsagt getað ráðið flestum sveitamálum til lvkta
á hverju reglulegu hreppsþingi. Þannig átti t. d. sá, sem hafði misst
nautfje sitt i fallsótt, bæði að segja til skaða sins og hve hann hefði
virzt á næsta reglulegu hreppsþingi eptir að hann beið skaðann.

Aukahreppsþingin kölluðust hreppsfundir eða hreppsstefnur. Þau vóru
ekki bundin við neinn ákveðinn tíma, heldur mátti stefna þeim saman
hvenær sem þörf krafði og svo opt sem vera skyldi. Hver einstakur

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:04:26 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1898/0114.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free