Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
101
hreppsbóndi gat stefnt til hreppsfundar, þegar hann hafði eitthvert það
mai aö flytja, sem purfti skjótrar afgreiðslu. Tilefnið til þessara
hrepps-funda virðist optast hafa verið ýmsar vafaspurningar viðvikjandi
fram-færsluskyldu hreppsins. Pegar ómagi hafði verið færður einhverjum
bónda til framfærslu, en bóndinn ekki áleit sig skyldan til pess að
fram-færa hann og pvi vildi låta hreppinn taka að sjer framfærsluna, þá gat
hann stefnt til hreppsfundar, til þess að fá leyst úr pessari vafaspurning.
Hann átti þá að boða til fundar með 7 daga fyrirvara að minnsta kosti,
og senda út hrcppsfundarboð; það var kross, sem bera skyldi bæ frá bæ
og jafnframt auglýsing um, hvenær fundurinn ætti að vera. Sá bóndi,
sem vanrækti að flytja hreppsfundarboðið áfram, er pað kom til hans,
eða kom ekki á fundinn, var látinn sæta sektum. Væru menn ekki
komnir fyrir hádegi, var syo á litið, sem menn hefðu ekki sótt fundinn;
urðu menn þá eins að greiða fjesektir fyrir þvi, þótt fundarboðið hefði
aldrei komið á heimili peirra, ef peir að eins höfðu fengið vitneskju um
fundinn.
A þessum aukahreppsþingum skiptu hreppstjórarnir manneldi, pegar
þegar slíks geröist þörf, og gátu þeir þá eins skipt ómaga til eldis á pá,
sem ekki höfðu komið á fundinn, sem aðra. Reyndar var svo til
ætlazt, að hreppsbúar skyldu eiga kost á, að koma fram með mótmæli
sín gegn skipting manneldisins, en það var þó ekki álitið nauðsynlegt,
að þeir menn væru viðstaddir skiptinguna, sem sjálfir höfðu vanrækt að
koma og pannig látið pað tækifæri til mótmæla ónotað, sem þeim hafði
verið boðið með fundarboðinu.
HREPPADÓMURINN. Auk hreppstjórnarinnar og hreppspinganna
höfðu menn og sjerstakan dómstól, sem kallaður var hreppadómur, til
pess að dæma i sveitamálum. Pað var 6 manna dómur, og skyldi
sækjandinn nefna 3 innanhreppsmenn í dóminn, en verjandinn aðra 3.
Dómstaður skyldi vera i örvarskotshelgi utangarðs pess manns, er
sótt-ur var, og dómendur lúka sinum dómi sama dag og peir komu til
dóms, en dómurinn settur fyrir miðjan dag. Hreppadómur skyldi
jafn-an vera rúmhelgan dag, en eigi um langaföstu nje löghelgar tiðir. En
annars gåt hann veriö á öllum tímum árs, nema um sjálfan
alþingis-tímann og tvær vikur fyrir og eptir alpingi (alls 6 vikna bil). Yrði
víti svo nærri alþingi, að eigi mætti sækja sökina að hreppadómi, skyldi
stefna málinu til alpingis og sækja pað par að þingadómi. Dómsköp
(reglur um flutning mála o. s. frv.) vóru í öllu verulegu hin sömu að
hreppadómi sem að pingadómi.
Pær sakir, er sækja skyldi að hreppadómi, vóru einkum pessar:
1. Ef menn ólu eigi pá ómaga, er hreppstjórar böfðu skipt á
hend-ur þeim með rjettu;
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>