- Project Runeberg -  Eimreiðin / IV. Ár, 1898 /
103

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

103

vasa gamalmennum, ef þau kusu ekki heldur að stytta sjer sjálf aldur,
er þau fundu, aö þeim var oröiö ofaukiö og mundu verða öörum til
þyngsla. Framfærsluskyldan heföi þannig i heiðni hvorki átt sjer staö
sem sveitarskylda nje sem ættarskylda, og hin islenzka
sveitastjórnar-löggjöf, sem einkum lyti aö fátækraframfærslunni, hlyti þvi aö stafa frá
kristni. Á sömu skoðun var dr. Guðbrandur Vigfusson. Hann
áleit aö hin islenzka sveitastjórnarskipun heföi fyrst myndazt i kristni,
á ii. öldinni, og það yrði þvi aö skoðast sem tímavilla, er sumstaöar
i sögunum væri talaö um »hreppa« i heiöni. Aptur á móti álitur
pró-fessor K o n r. Maurer, sem mest og bezt hefur skrifað um þetta efni
annar en Vilhjálmur Finsen, aö Islendingar hafi þegar i heiöni haft
lögbundna framfærslu og sveitastjórn, en að áhrif kirkjunnar hafi oröiö
þess valdandi, að ákvæöunum um framfærsluna hafi veriö breytt eptir
að kristni var i lög tekin. Hann heldur jbvi jafnvel fram, aö
Islendingar hafi haft lög um framfærslu og sveitastjórn allt frá landnámstíð,
og komiö meö þau frá Noregi, þar sem hann álítur aö til hafi veriö
regluleg sveitastjörnarlög i heiöni, áöur en ísland bygöist. Hann byggir
þessa skoöun á allmörgum ástæöum, sem hjer yröi oflangt upp aö telja;
en engin af þessum ástæöum er þó þannig löguö, aö vjer höfum getaö
sannfærzt um, aö þessi skoöun hans væri rjett. Vjer álítum beint á
móti, aö hin islenzka sveitastjórnarskipun sje upprunnin á Islandi og
ekki komin þangað frá Noregi. Þó munu menn þegar i heiöni hafa
haft nokkur drög til hennar. Pannig bendir margt til þess, aö sum af
hinum höröu ákvæðum um meöferö á verkfærum göngumönnum stafi
frá þeim tíma. Sama er aö segja um ákvæðið um, aö sá, er setjast
vildi aö i einhverri ákveöinni sveit, yröi aö biöja sjer byggöarleyfis.
Ennfremur álítum vjer, aö ákvæöin um vátrygging á húsum og
naut-peningi stafi frá heiöni, þó prófessor iMaurer sje á þeirri skoöun, aö
einmitt þau sjeu yngri en hin önnur ákvæöi sveitastjórnarlaganna og
stafi frá siöasta hluta þjóðveldistímans. En oss viröist þessi ákvæöi sjálf
bera það meö sjer, aö þau hljóti aö vera upprunnin i heiöni, par sem
svo er aö oröi kveöiö, aö ef menn eigi bæöi eldhús og skála, þá skuli
menn kjósa, hvort þessara tveggja húsa menn vilji heldur hafa mælt til
skaöaböta. Par sem nú höf. þessara lína þykist áður hafa sannaö meö
rannsóknum sinum á húsaskipun Islendinga á þjóöveldistimanum, aö
aö menn hafi þegar um lok 10. aldar á velflestum bæjum veriö bünir
aö koma sjer upp sjerstöku svefnhúsi eöa skála, og ekki lengur sofið i
eldhúsinu, eins og áöur var títt, þá viröist af þessu mega ráða, aö þetta
vátryggingarákvæði sje eldra og hljóti aö stafa frá þeim tima, er það
var ekki enn oröiö mjög almennt aö hafa bæöi skála og eldhús á sama
bæ. Það viröist þvi ekki geta veriö yngra en frá siöari hluta 10. aldar,

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:04:26 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1898/0117.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free