- Project Runeberg -  Eimreiðin / IV. Ár, 1898 /
117

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

ii7

Raddir framliðinna.

Eins og ávarp það til Islendinga, er 16 alþingismenn sendu
um land allt síðastliðið sumar, ber með sjer, kom á siðasta
al-þingi fram af stjórnarinnar hálfu yfirlýsing um, að hún væri fús
á að samþykkja þær umbætur á stjórnarskipun vorri: aö skipadur
yrði sjerstakur ráðgjafi fyrir ísland, er eigi hefði ’ónnur stjórnarstörf
d hendi, skildi og talaöi íslenzka tungu, eða meö öörum orðum vœri
fsendingur, ætti sæti d alþingi og bœri ábyrgð fyrir því d allri
stjórnar-athöfninni. Þetta kváðust ávarpsmennirnir skoða sem
»þýðingar-mikið tilboð«, er »hefði i sjer fólgnar mikilsverðar umbætur á
hinum tilfinnanlegustugöllum á stjórnarfari voru.« Hins vegar var
það tekið fram af hálfu þeirra þingmanna, sem ekki vildu taka
þessu tilboði stjórnarinnar, að hinar framboðnu umbætur væru
svo litlar og óverulegar, að ekki væri við þeim lítandi.

Þar sem nú skoðanirnar um þettar eru svo skiptar meðal
fulltrúa þjóðarinnar, hlýtúr það fyr eða siðar að koma til hennar
kasta að skera úr þessum ágreiningi. Vjer ímyndum oss þvi, að
mörgum af iesendum vorum mundi þykja fróðlegt að fá að vita,
hvernig sumir hinna fyrri þingskörunga vorra, sem nú eru þvi
miður komnir undir græna torfu, mundu líta á þetta mál, ef þeim
væri auðið að rísa upp úr gröf sinni og tala til lýðsins. Til slíkra
skörunga má óefað telja Einar sál. Ásmundsson (í Nesi), sem öllum
kemur saman um, að verið hafi einhver hinn vitrasti, bezt
mennt-aði og þjóðhollasti bóndi, er um langan aldur hefur uppi verið á
Islandi. Það vill nú svo vel til, að einmitt þessi maður hefur
fyrirfram látið skoðun sína á þessu i ljósi í grein sinni
»Hugleið-ingar um stjórnarmálið«, sem prentuð er i »Andvara« V. Þar
segir svo (bls. 6—io):1

»Onnur grein stjprnarskrárinnar segir svo fyrir, að konungur
láti ráðgjafann fyrir Island framkvæma vald sitt yfir hinum
sjer-staklegu málum landsins, og að þetta vald, að því leyti, sem þvi
er að beita innan lands á Islandi, skuli fengið i hendur
landshöfð-ingja, en á ábyrgð ráðgjafans, eður með öðrum orðum,
landshöfð-inginn á að vera dbyrgðarlaus erindsreki rdðgjcifans og hafa þau
störf á hendi fyrir hann, sem konungur ákveður. Þriðja grein
talar um stjórnarábyrgð ráðgjafans og segir, að lög skuli setja um
hana, sem að vísu er ógert enn. Þar eru og þýðingarlítil
um-mæli um það, að alþingi kunni að geta komið fram ábyrgð á hend-

1 Allar leturbreytingar eru gerðar af oss.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:04:26 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1898/0131.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free