Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
127
guði skuli hjartanu ofFra, og þetta er sætara en »manna« milll tannanna«
(Hrs. Rasks 107, 199. bl.). Ekki hef jeg sjeð tóbaksnautn álasað í
öðrum andlegum ritum, og er £>ó sízt fyrir að synja, að fundið kunni
að vera að henni viðar í þeim aragrúa af guðsorðabókum, sem til eru
á íslenzku, bæði prentaðar og óprentaðar, því það var altítt, að prestar
í Danmörku úthúðuðu tóbakinu í ræðum sinum og ritum, og er líklegt,
að íslenzkir prestar haíi dregið dám af stjettarbræðrum sínum í
Danmörku, ekki síður i því en öðru.
Aðfinningar þær við tóbaksnautnina, sem færðar hafa verið til, hafa
eflaust einkum átt við óhóf i pessa átt, en á hinn bóginn töldu mcnn
tóbak hollt, þegar þess væri neytt í hófi. Sjera Stefán Olafsson segir
(I, 320—21), að neftóbak sje gott við kvefi, hósta og mæði, iwinntóbak
eigi við slimi i munni_ og tannpinu, tóbak lækni augnverk og reyktóbak
sje gott í leiðindum. I öðrum visum segir sjera Stefán, að tóbak sje
gott við heilaveiki, brjóstmæði, vatnssýki, blóðnösum og kvefi, en ef
þess sje neytt óhóflega, þá deyfi það sjón og lykt og hafi í för með
sjer slen og matleiða. Auk þess »svartbrenni það part ennis« (I,
321—22).
Pess er getið víðar í kvæðum sjera Stefáns, að heilsubót sje að
tóbaki, og sjera Hallgrímur Pjetursson klykkir skammirnar um tóbakið
út meö vísu þessari:
Tóbakið hreint
fæ gjörla’ jeg greint
gerir höfðinu ljetta,
skerpir vel sýn,
Ohóf i tóbaksnautn þótti fara illa á öllum, en einna verst á
prest-um og öðrum lærðum mönnum, og er drepið á það i brjefi frá
Brynjolf! biskupi Sveinssyni til klerka i Vestfirðingafjórðungi 16451:
»Prestar sjeu hófsamir, sjái við ofdrykkjum brennivíns og tóbaks, bvar af
mörgum hefur því miður hneyxlan orðið i þessu landi« (Ny kgl. Saml.
1847, 4to, 77. bl.). Ekki hefur þó Brynjólfur biskup amazt við allri
tóbaksnautn, því menn hafa sögur af þvi, að hann hafi sjálfur keypt
tóbak. í reikningi Páls Kristjánssonar kaupmanns í Hólmi2 til
Brynj-ólfs biskups 1658 er talið tóbakspund á 30 fiska (Brjefabók Brynjólfs
biskups. Hrs. ÁM. 272 fol., 21. bl.), og vorið 1664 sendi Arni
Pålsson biskupinum tóbaksbita, sem vo hálfa 7. mörk, en veturinn áöur
hafði hann sent honum 7 merkur af tóbaki (ÁM. 275, 337. bl.).
Ýmsir gjörningar eru til frá 17. öld, þar sem drepið er á tóbak,
og skal jeg nú geta þeirra.
1652 var lesinn upp á alþingi dómur Magnúsar sýslumanns
Bjarna-sonar um hlut i Vestmannaeyjum, sem kallaður var tómur, tóbakssölu og
fleira. Úrskurður Árna lögmanns Oddssonar var lika lesinn þar upp
(Alþingisbók 1652, nr. 6).
3. október 1659 sættust þeir á Dröngum á Skógarströnd sjera
As-mundur Eyjólfsson og Ámundi Brandsson á tnál það og óvild, sem
risið hafði á milli þeirra út úr nokkrum álnum tóbaks (Hrs. Thotts
2109, 4to).
1 Sbr. brjef Þórðar biskups, sem seinna verður drepið á.
2 Þ. e. Reykjavik.
svefnbót er ffn,
sorg hugarins dvín;
sannprófað hef jeg þetta.
(II, 4I3—I4)-
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>