Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
i3i
brjefi, dagsettu 22. nóvember 1684, og skipaði hann þeim að låta sig
vita úrslit málsins sem fyrst. Rannsókn málsins er mjög löng og
flók-in, og skal þess aö eins getið hjer. með fám orðum, sem snertir tóbak
eða tóbakssölu.
I annari grein í kæru prestanna er þess getið, að Jón biskup hafi
verið settur frá sýslu sinni »fyrir tóbakshöndlun, sem hann við
fram-andi óprivilígeraðar nationes brúkað hefur«, þvert á móti konungsbrjefi;
báru prestarnir fram vottorð, sem tveir lögrjettumenn höfðu eiðfest á
Heynesþingi 3. ágúst 1672, um að Torfi Hákonarson, »sem jbá var
með þeim hollenzku ófríhöndlurum«, hefði lýst Jjví yfir i lögrjettu, að
Jón sýslumaður hefði keypt af sjer tóbak, en hann kvaðst hafa markað
tóbakið með K. M. eöa marki konungs. Nú höfðu tveir menn svarið,
að ekkert mark hefði sjezt á tóbaksrullunum annað en það, sem hefði
verið á þeim frá Hollandi, og þótti klerkunum ekki gott að koma þessu
saman. Enn sór Hannes Teitsson á Skaga á Akranesi, að hann vissi
ekki betur, en hann hefði geymt þetta tóbak fyrir Jón sýslumann og að
vinnumaður hans hefði sótt til sín þessar 6 tóbaksrnllur á hestum frá
Leirá og flutt þær þangað.
Jón biskup færði sjer það til málsbóta, að hann heföi spurt að því
á leiðarþingi að Leiðmóti við Laxá 24. ágúst 1671, hver eiga skyldi
þessar 6 tóbaksrullur og hvernig með þær skyldi fara; lýsti Hannes þvi
þar yfir, að Torfi Hákonarson hefði komið með rullurnar til sín og
skilið þær eptir i reiðileysi, því ekki hefði hann talað þar að einu orði,
að Jón sýslumaður hefði keypt þær af sjer, og hvorki hefði
sýslumað-ur nje nokkur af mönnum hans beðið sig að geyma þær. Pingmenn
kváðust ekki geta skorið úr, hver ætti tóbakíð, og visuðu málinu til
úr-skurðar Siguröar lögmanns Jónssonar. Enn kom Jón biskup fram með
dóm, genginn að Leirá 13. febrúar 1672, og höföu 6 menn dæmt þar
með Sigurði lögmanni, að flytja skyldi tóbakið til Bessastaða, eins og
annað »ófrihöndlara góss«. Var tóbakið nú flutt suður og lagði biskup
fram vottorð frá Oluf Jonsen Klov, um að hann hefði tekið við 4 1
tóbaksrullum. En aö þvi er snerti mörkun á rullunum, kvaðst Jón
biskup hafa sagt á alþingi 1671, að hann hefði markað þær með marki
konungs, K. M., með krit, og við þennan framburð stóð hann enn;
sagðist hann ekki geta að því gert, þó markið hefði máöst af, eða þótt
þvi hefði verið breytt. Klerkarnir vóru óánægðir með afbatanir biskups,
en hann kvaðst ekki geta sannað framburö sinn betur, en hann hefði
gert, þvi Torfi Hákonarson væri dáinn.
Þriðja ákærugreinin, sem norðlenzku klerkarnir báru á Jón biskup,
var, að hann hefði fengizt við verzlun, engu síður en verzlegir
»Handels-menn«, og að hann hafi »stóra höndlan haft með tóbak og með einu
excessive háu verði (eptir þvi, sem heyrt höfum) hjer i landinu fortsett
og drifiö«. Sögðu klerkarnir, aö þessi verzlun Jóns biskups væri
mörg-um mönnum kunnug, og skyldu þeir sanna, ef Jón biskup bæri á móti,
að hann hefði selt tóbak dýrara, en væri kveðið á í alþingisdóminum
1679. Biskup, landfógeti og ýmsir klerkar kváðust ekki vita’fullar sögur
1 Ekki gåt biskup þess, hvað orðið heföi af þeira tveimur rullum, sem á
vantaði.
9*
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>