- Project Runeberg -  Eimreiðin / IV. Ár, 1898 /
132

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

132

á þvi, að Jón biskup hefði selt tóbak með »excessive« háu veröi, »þó
þeir ei neiti sig heyrt hafa almennan róm um hans tóbakssölu«. Jón
biskup var nú spuröur að, hvort hann neitaði því, að hafa selt tóbak,
en hann svaraði, »að þó hann tóbak selt hafi dýrara, en
alþingissam-þykkt 1679 ákveöur, þá hafi þaö skeð sjer og sínu heimili til
forsorg-unar og viðurhalds, þar sem ei annað til uppeldis haft baíi en sínar
eignir i svo margt ár«. (Hrs. Lbs. 101, 4to., bls. 176.—91; sbr. Árb.
J. Esp. VII, 72, 73, 113; VIII, 10, 11; sbr. bls. 20).

Alltaf átti Jón biskup viö ramman reip að draga, eptir að hann
kom að Hólum, og átti í málum til dauðadags; en Þóröur sonur hans
vann öll mál föður sins fyrir hæstarjetti 1693 að honum látnum og
varð síðan hinn merkasti maður. Jón Espólín segir, að óvinir Jóns biskups
hafi kallað hann Bauka-Jón, af þvi hann hafi selt »i smábaukum þaö, er
hann kallaði dýrindi nokkur«, en líklegra er, að nafnið sje dregið af þvi,
aö biskupinn hafi selt neftóbak, og að þessi dýrindi hafi einmitt veriö
neftöbak, ef til vill bætt á svipaöaöan hátt og enn tiökast, meö
tóbaks-baun eöa tóbaksdropum.

AÖ því er snertir verölag á tóbaki á 17. öld, þá er fyrst getiö um
paö i taxtanum 1684, og kostaöi þá eitt pund af góðu »stðk-tóbak« 12
fiska, ef það var borgaö i fiski eöa lýsi, en 13 fiska ef borgaö var i
öðrum vörum. Eitt pund af góðu »press-tóbak« kostaöi 10 eöa 11 fiska,
eptir vörunum, sem borgaö var meö. (Lovsaml. f. Isl. I. Lagasafn
Magn. Ketilssonar III.). Sama verð er á tóbaki i taxtanum 10. april,
en þar er bætt viö gulu reyktóbaki, og átti þaö aö kosta 12 fiska (L.
f. Isl. I). Seinna á öldinni er verö hækkaö á tóbaki á Islandi meö
konungsbrefi 23. marz 1778, og var veröiö þá 21 skilding á pundi af
»þryktu tóbaki«, 20 skildinga á rólpundinu, en 24 skildinga á pundi af
»skozkri mjörri rallu«, eptir þvi sem segir i alþingisbókinni 1778, »þó
svo, aö þessir prisar falli eptir sem utanlands tóbaksblöö falla i pris«.

Presstóbak þýðir munntóbak og hefur því slöktóbakið efiaust veriö
haft til reyktóbaks og neftóbaks. Eptir taxtanum 1684 kostar veturgamall
sauöur 20 fiska og hefur tóbakspundið pvi kostaö 5 kr. •— 6 kr. 50 au.
i peningum peim, sem nú gilda, ef sauöurinn er reiknaöur á io kr.,
og þættu þaö dýr matarkaup um þessar mundir.

Fyrst fluttist tóbak til Islands frá Englandi, en faar sögur hafa menn
af þeirri verzlun, og engar aörar sem jeg þekki, en aö Jason
kaupmaö-ur Vest1 hafi flutt tóbak til landsins.

Inn í landið upp á hest. árlega sendir Jason Vest

segir sjera Stefán Ólafsson (I, 326). Seint á 17. öld og framan af 18.
öld munu Islendingar hafa keypt talsvert af tóbaki hjá hollenzkum
fiski-mönnum, sem voru á vakki umhverfis allt landið, og er þaö gefiö i skyn
i leyfi konungs til hins islenzka verzlunarfjelags aö fá tóbak i Hollandi
8. janúar 1728, aö Islendingar kaupi tóbak hjá Hollendingum i óle3’fi
(L. f. Isl. II.). Leyfi þetta var endurnýjaö 1729, 1730 og 1733.

Af leyfi þessu sjest berlega, aö Danir hafa veriö farnir aö flytja
tóbak til Islands snemma á 18. öld, og efiaust hefur tóbaksverzlun viö þá

1 Enskur kaupmaður i Eyrarbakka fyrir og um miðja 17. öld.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:04:26 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1898/0146.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free