Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
3
byrjað þegar á 17. öld; en ekki vita menn þó, hvenær Danir fóru
fyrst að flytja okkur tóbak. 1630 er tóbak ekki talið, þar sem getið
er um vörur þær, sem fluttar voru frá Danmörku til íslands, og ekki
heldur 1655, eptir þvi sem Skúli Magnússon landfógeti segir i Deo regi,
patriœ^ (1768, bls. 379). Um miðja 18. öld er aptur öll tóbaksverzlun
við Islendinga komin í hendur Dönum, þvi svo segir í konungsbrjefi
27. april 175 r til Rantzaus greifa, stiptamtmanns á Islandi, að ekki
megi flytja til íslands annað presstóbak en þaö, sem búið væri til í
verksmiðju einni i Kaupmannahöfn, og ekki mættu Islendingar hafa
annað tóbak meðferðis (L. f. ísl.).
Jeg hef fyrst rekið mig á skýrslur um tóbaksflutninga til Islands
r743 °g skal jeg færa hjer til pundatöluna bæði þetta ár og nokkur
önnur ár til samanburðar:
1743 1784 1806 1816 t849
6560 <8 53800 ® 76160 66064 79967 ®
Hjer er allt tóbak talið, og er skýrsla þessi tekin eptir skýrslum um
landshagi á Islandi I.
Menn vita lika, að minnsta kosti að nokkru leyti, hve mikið
flutt var af tóbaki til Islands 1750. Islenzka verzlunarfjelagið kvartar
yfir pvi 17 51, að Islendingar kaupi minna af dönsku tóbaki en áður
hafi tiðkazt. Áöur hafi verið keyptar par 5—600 kistur af presstóbaki
árlega, en nú aðeins 233, og af þessum 533 kistum, sem hefðu verið
sendar til Islands árið áður, væri helmingurinn óseldur (L. f. Isl. II,
bls. 7,3—74)-
I »Samlinger til Handels-magazin for Island« I er talið hve mikið
var flutt af pipum og tóbaki til islands 1786 og 1787, og er skýrslan
á þessa leið:
1786 1787
Tylftir af löngum pípum 139 159.
Tylftir af stuttum pípum 466 34.
Presstóbak hjerumbil 33880 29040.
Rullutóbak —»— 30000 24000.
Skozkt tóbak —»— 16000 14450-
Presstóbak var haft til munntóbaks, eins og áður er getið um, en
rullutóbak og skozkt tóbak til neftóbaks, og vantar þvi alveg reyktóbak,
en menn munu hafa reykt samskonar tóbak og menn tóku í nefið og
jafnvel upp i sig. Munntóbak hefur jafnvel verið reykt framundir
þenna dag, og jeg hefi talað við mann úr Rangárvallasýslu, sem segist
hafa reykt þar munntóbak úr járnpipu um 1880, og mun vera fremur
rammt. Aldrei hef jeg sjálfur vitað þessa reykingaraðferð á
Norð-urlandi.
1 verzlunarskýrslunum frá Islandi fyrir 1890, i Stjórnartíðindunum
1891, er skýrsla um tóbaksflutning til Islands:
Neftóbak 31259 % Reyktóbak 22463 kr.
Munntóbak 56597 % Vindlar 20094 kr.
og sjest af henni að miklu meira er flutt nú af tóbaki til Islands en á
18. öld og um miðja þessa öld.
Nú hafa veriö taldar ýmsar tegundir tóbaks, sem fluttar voru til
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>