- Project Runeberg -  Eimreiðin / IV. Ár, 1898 /
134

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

134

íslands, en enn var flutt þangað tóbak, sein kallað var íslenzkt
tó-bak, og segir Jón Olafsson frá Grunnavík í orðabók sinni, að það dragi
nafn af því, að það hafi verið bútað í sundur og svo sósað vel, en
ekki þurkað; er þetta vlst svo að skilja, að þess konar tóbak hafi verið
útgengilegast á Islandi, og bafi því flutzt mest þangað. Petta islenzka
tóbak var ódýrara og þvi eflaust verra en annað tóbak. Pontoppidan
kvartar yfir því í »Oekonomisk Balance« 1759, að Danir neyti allt of
mikils tóbaks; mundi það kosta ærið fje, ef þeir keyptu ekki annað
tóbak en spanskt tóbak, en til allrar hamingju væri það mest íslenzkt
tóbak og norskt tóbak, sem þeir neyttu. Það brann lengi við og eymir
jafnvel ef til vill eptir af því enn þá, að Dönum þótti allt nógu gott
handa Islendingum, en reyndar verður þeim ekki gefin sök á þvi, þótt
þeir flyttu Islendingum miður vandaö tóbak, ef þeir hafa kosið það
frem-ur en gott tóbak.

Islendingar sjálfir gerðu mun á neftóbaki, piputóbaki og tuggutóbaki,
eins og kemur fram i Tóbaksvisum sjera Hallgríms Pjeturssonar, og
munu tvö seinustu oröin alveg vera vikin úr sæti fyrir orðunum
»reyk-tóbak« og »munntóhak«. Oröið »ró/« kemur lika fyrir þegar á 17. öld
í kvæðum sjera Stefáns Olafssonar (I, 328). Orðið »tóbakur« hefur
lika verið til, og segir Jón Olafsson, að það tiðkist sumstaðar á
Vestur-landi (orðab.). Á sama stað segir hann, að »íið tóbaka sig« þýði aö búa
sig út með tóbak, en mig minnir, að jeg hafi heyrt sögn þessa bafða
um að taka tóbak.

Að þvi er snertir verkfæri þau og hirzlur, sem þarf við
tóbaks-nautn, skal þess getið, að menn reyktu þvi nær eingöngu úr leirpípum
að fornu fari og eflaust lika á Islandi. Tóbakspipa er nefnd i kvæðum
sjera Stefáns (I, 289) og á öðrum stað (226) segir hann, aö Jason Vest
flytji inn i landið meira en 600 pípur á ári hverju. Nú voru
leirpíp-urnar stökkar mjög, og geymdu menn þær þvi 1 dósum og tóbakið lika.
Á forngripasafninu i Reykjavik eru til hollenzkar tóbaksdósir frá 17. öld
(Sk. I. 1869, nr. 60) og eru þær ætlaðar bæði pipu og tóbaki. Fleiri
tóbaksdósir eru þar til, en þær eru allar yngri. I kvæðum sjera
Hall-grims Pjeturssonar (II, 370) er getið um tóbaksdós, hvort sem þar er
átt við reyktóbaksdós eða neftóbaksdós, þvi vist er um það, aö menn
höföu lika dósir undir neftóbak á 17. öld, og eru enn til dósir Bauka
Jóns biskups. Baukar eða pontur munu þó hafa verið tiðari
neftóbaks-ilát á 17. öld og er víða getið um þá i kveðskap. Sjera Stefáti
Olafsson nefnir viða bauka (I, 282, 327, 331, 332, 334), og enn minnizt
hann á renda birkibauka (I, 333) og á birkikúpur, sem menn geymi i
vetlingsþumlum sinum. Þessi tóbaksilát bljóta þvi að hafa verið mjög
litil. Sjera Hallgrimur Pjetursson yrkir vísur um bauk, Baukvisur (II,
4I0—12), og enn yrkir hann visu um tinsteyptan tóbaksbauk (bls.
443); má ráða af henni að baukar hafi þá verið með svipaðri gerð og
nú. Á Forngripasafninu er ponta úr tönn (S. II, 1, nr. 852), sem
hefur verið eignuð Daða bónda Guömundssyni i Snóksdal, en það getur
ómögulega verið rjett. Daði bóndi dó 1563 eða löngu áður en tóbak
fluttist fyrst til lslands. Ponta þessi kvað þó vera allgömul.
Tann-baukar hafa ávalt þótt meiri gersemar en trjebaukar, en einna mest
hefur þótt koma til bauka úr lausnarsteinum. Jeg hef sjeð tvo mjög gamla

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:04:26 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1898/0148.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free