Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
43
gegn kenningum próf. Bugges um uppruna norrænna goðasagna
og aldur nokkurra fornskáldakvæða. Hefur hann í þeim verulega
hnekkt ýmsum af kenningum Bugges og rækilega sýnt, að margt
af þvi, sem B. telur aðfengið og ummyndað, hljóti að vera
nor-rænn frumgróður, en ekki komið til þeirra frá Irum. Höfuðrit
dr. Finns er þó hin fornnorska og fornislenzka bókmenntasaga
hans (sbr. Eimr. II, 151—153), sem verður heljarmikið rit, en er
enn ófullbúin. En það, sem út er komið, er nög til að sýna, að
hún verður stórmerkileg bók, enda hefur hún hlotið almenna
við-urkenning, að þvi einu undanskildu, að öflug andmæli hafa verið
hafin gegn kenningum hans um heimkynni Eddukvæðanna. En
slikt er eitt af þvi, sem þrátta má um um aldur og æfi, án þess
líkindi sjeu til, að menn komist nokkurntíma að öruggri
nið-urstöðu.
Dr. Finnur hefur óþreytandi starfþol og elju og er
afkasta-maður hinn mesti. Þótt hann jafnan hafi mörg járn í eldinum,
er eins og hann hafi ætið nógan tima til alls, ef til hans er leitað,
enda er hann manna hjálpfúsastur. Hann er drengur hinn bezti
og ágætur fjelagsbróðir. Hann er »hreinlyndur sem hvitabjörn«,
en getur reitt upp hramminn, ef því er að skipta. Hann hirðir
ekki um að vera allra vinur, og getur verið nokkuð óþjáll. En
hann er vinur vina sinna, en óvæginn andstæðingum, og bregður
að þvi leyti í ætt til forfeðra vorra. A stúdentsárum sinum hafði
hann mikinn áhuga á pólitik og var þá framsóknarmaður hinn
mesti; en nú lætur hann pólitíkina ekki til sin taka nema sem
athugall áhorfandi. Alla sina miklu starpskrapta hefur hann helgað
visindunum. v. G.
Frjettaþráðurinn.
Stærsta fjárveitingin, sem nokkurn tima hefur verið veitt á
alþingi, er tillag það til frjettaþráðar milli íslands og útlanda, sem
veitt var á siðasta þingi. Til þessa var veitt 700,000 kr., skipt
niður á 20 ár (35,000 kr. á ári). Þar sem um svo mikla fjárveiting
var að ræða — meira en allar árstekjur landsins —, geta menn
sagt, að það hefði verið skylda pingsins að búa svo um hnútana,
að hún kæmi öllu landinu eða að minnsta kosti mestum hluta
þess að notum, en yrði ekki að eins til hagnaðar fyrir einhvern
einstakan stað. En þetta gerði þingið ekki. Það setti engin
skilyrði fyrir þessari fjárveiting önnur en þau, að fjenu skyldi
varið til frjettaþráðar milli útlanda og einhvers staðar á íslandi.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>