Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
Þið munið víst öll eptir þessu gamla, góðfræga skáldi, sem
kemur fyrir í ævintýrinu »Óþekki stráhirinn« eptir Andersen, og
tekur svo vel og notalega móti óhræsis stráknum honum Amor,
sem ber að dyrum hans; hann hitar handa honum vín, gefur
honum bezta eplið, sem hann átti í eigu sinni, þurkar fötin hans
og hjúkrar honum eptir föngum, en fær þó ekki launað nema
illu einu alla gestrisnina; strákurinn bendir boga sinn og skýtur
hann beint í hjartastað, svo að aumingja karlinn engist sundur
og saman á gólfinu og segir með grátstaf í kverkunum: »Ohræsið
hann Amor, það er ljóti
strákurinn. Enda skal jeg
segja góðu börtiunum frá
því, svo að þau geti varað
sig á að leika sjer við
hann, því að það verður
þeim ekki nema til ills!«
— Mjer finnst satt að segja
öll hin eldri skáld, sem
nú eru talin, eða að
minnsta kosti hávaði
þeirra, vera ekki allsendis
ólík þessu »gamla,
góð-fræga skáldi«, þvi að það
er Amor, sem þeir hjúkra
með mestri ástúð og
um-hyggju, og það er líka
hann, sem verður þeim verstur ljar í þúfu þegar hanif er
»óþekkur«.
Enn er eitt skáld, er telja má með þessum góðu, gömlu
skáldum, og það er H. C. Andersen sjálfur. Hann þekkjum
við öll mæta vel. Ævintýri hans eru þýdd á allt að tuttugu
tungu-mál. Við skulum snöggvast lita á, hvað hann segir sjálfur um
sig og apptök ævintýraskáldskapar sins. »Jeg tek hugmyndir hinna
fullorðnu og segi svo börnunum frá, en gleymi því ekki, að pabbi
og mamma hlýða á, og þeirra verður maður að taka tillit til í
hugsuninni«.
Frederik Paludan-Müller svipar að nokkru leyti til þessa
gamla, góðfræga skálds, t. d. er hann kveður um »Amor og
Psyke« í leikandi ljettu rími. En einn góðan veðurdag stigur hann,
Christian Winther.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>