Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
220
»Nœturvörðinn« o. fl. Seinasta bók hans nefnist
»Hamingju-Hrólf-nr« (Lykke-Per); hann segir þar frá ungum manni, hvernig hann
nær fullum andlegum þroska; mikið af því á eflaust töluvert skylt
við Pontoppidan sjálfan og hvernig honum hefur vaxið fiskur um
hrygg.
Vera má að sumum þætti gaman að sjá, með hve hröðum
og handvissum dráttum Pontoppidan getur dregið upp myndir af
mönnum, — mönnum, sem eru jartegnan málefna. — Jeg ætla að
taka hjer til dæmis dálitla mynd, er hann hefur gjört aí núlifandi
manni, svo að þvi hægra sje að
dæma um, hve vel hún hefur
tekizt. Það er kafli úr sögunni
»Fyrirheitna landið« þar sem
höfundurinn segir frá greptrun
lýðháskólastjóra nokkurs:
»Jafnvel eitt af stórskáldum
Norð-manna, sem um þær mundir var
að ferðast um í Danmörku og
halda fyrirlestra, — jötunmenni
að vexti, með mikið
leikara-hár, arnarandlit, gleraugu og
hvitt slipsi —, var þangað komið,
mönnum til mikillar gleði; allra
auga störðu undrandi á þennan
tigulega, hátalaða mann. Hvert
sem hann gekk, flykktist fjöldi
manns um hann og hlýddi
hrif-inn á orð hans; einkum var þó Niels og nokkrir aðrir ungir menn
í hælunum á honum meir en góðu hófi gegndi; þar kepptist hver
við annan að verða sá útvaldi, er mikli maðurinn klappaði á
herðarnar um leið og hann talaði. »Já, hjer er fagurt umhorfs!«
kvað við frá honum langar leiðir á snjöllu og hreimmildu máli.
»Það er gróðurinn hjá ykkur hjerna syðra, — það sje jeg i dag!
En þið eruð lika hinn forni jarðvegur andlegs lifs á
Norðurlönd-um, því megið þið ekki gleymal En við þarna nyrðra erum ungir
nýlendingar. Og svo höfum við þvílík feilen af fjöllum,......
o, þvílík feilen af fjöllum!« — Skyldi nokkur hafa lýst Björnstjerne
Björnson betur, þvi að sá er maðurinn, þótt nafnið vanti.
JOHANXES JöRGENSEN.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>