- Project Runeberg -  Eimreiðin / IV. Ár, 1898 /
239

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

239

málið —, kynni sjer þessa ritgerð hans rækilega og láti sjer leiðbeiningar hennar
að kenningu verða.

HALLDÓR JONSSON: UM LÁNSSTOFNUN (sjerpr. úr Andvara XXII).
Eins og kunnugt er skoraði síðasta alþingi á stjórnina, að leggja fyrir næsta
al-þingi frumvarp til laga um lánsstofnun eða lánsfjelag fyrir jarðeignir og húseignir
í landinu, er geti veitt veðlán um sem lengst árabil og með sem vægustum
vaxtakjörum. Höf. álítur þessa ályktun á fullum rökum byggða, með því
fjár-magn landsbankans sje svo takmarkað, að hann hvorki geti fullnægt lánsþörfinni
nje veitt lánin með svo haganlegum kjörum, sem þörf sje á (t. d. til margra
áratuga). Álítur hann, að hentugast mundi og kostnaðarminnst að setja slíka
lánsstofnun í samband við landsbankann, þannig að stofnuð sje sjerstök lánsdeild
í bankanum og henni veitt heimild til að gefa út vaxtabrjef og selja þau.
Annars eru í ritgerðinni margar góðar upplýsingar bæði um frumvarp stjórnarinnar
1881 »um stofnun lánsfjelags fyrir eigendur fasteigna á íslandi« og margt fleira,
er að þessu máli lýtur, og munu margir kunna höf. þökk fyrir þær, því málið
er mjög athugavert og þyrfti að ræðast frá sem flestum hliðum.

BOGITH. MELSTEÐ: ÖNNUR UPPGJÖF ÍSLENDINGA EÐA HVAÐ?
Khöfn 1898. Ritlingur þessi er í 12 köflum og 72 bls. að stærð. Efni hans á
að vera, að sýna fram á, að stjórnarbótartilboð það, er fram kom á síðasta þingi
af hálfu stjórnarinnar, hafi verið ótækt, og hinar hörðustu árásir á þá, er sinna
vildu þessu tilboði, og þær stundum kryddaðar með miður hæfilegum getsökum.
Gengur höf. jafnvel svo langt í öfgum sínum og ofstæki, að hann telur það hið
mesta happ fyrir landið, að ráögjafi þess sje danskur maður og ókunnugur
mál-um þess, og álítur hins vegar, að hin mesta hætta gæti verið af því búin, ef
hann yrði Islendingur og mætti á alþingi. Að vilja ganga að þeirri breyting
líkir höf. við uppgjöf Islendinga á 13. öld, er þeir gengu á hönd Noregskonungi.
Leggur hann því til að låta það stjórnarfyrirkomulag, sem nú er, halda sjer, en
gera þá eina breytingu, að auka vinnukrapt á skrifstofu landshöfðingja, svo hann
fái minna að gera og geti því betur sinnt löggjafarstai finu, sem hann hingað til
hafi vanrækt. Ber allur ritlingurinn vott um hinn herfilegasta miskilning bæði á
hinu núveranda stjórnarfyrirkomulagi (afstöðu hinna tveggja liða: landshöfðingja
og ráðgjafa, hvors til annars) og öllum þeim grundvallarreglum, sem þingbundin
stjórn byggist á. Hann vill efia sem mest skrifstofuvatdiö, en hirðir minna um
þingvaldit. Þetta er líka eðlilegt frá hans sjónarmiði, þar sem hann setur allt
sitt traust til innlendrar embættismannastjórnar, en hefur svo mikla ótrú á
al-þingi, að hann álítur, að ef sjerstakur íslenzkur ráðgjafi mætti á þinginu, þá
mundi hann hafa allt ráð þingsins í hendi sjer, því vonin um umbun frá hans
hálfu mundi mega sín svo mikils hjá þingmönnum, að flestir yrðu til að lylla
þann flokkinn.

HAFSTEINN PJETURSSON: TJALDBÚÐIN (The Winnipeg Tabernacle).
Winnipeg 1898. í ritlingi þessum, sem er 52 bls. á stærð, er fyrst stutt yfirlit
yfir sögu kirkjumála íslendinga í Ameríku allt frá byrjun og því næst skýrt frá
myndun Tjaldbúðarsafnaöar í Winnipeg og tildrögunum til þess að hann
mynd-aðist. Þá er skýrt frá bygging Tjaldbúðarinnar (og fylgir mynd af þeirri kirkju,
sem er krossbygging með fjórum stöfnum) og afstöðu safnaðarins til
kirkjufje-lagsins, lögum hans og verkahring.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:04:26 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1898/0257.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free