- Project Runeberg -  Eimreiðin / VI. Ár, 1900 /
34

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

34

Með sælutia og friöinn gekk svona,
Alt svipult er þessum í heim,
Og á þeim signaða svani
Hve sundurleit skoðun hjá tveim.

Peim öðrum í fuglslíki engill
Með alskæra sönghljóða gerð,
En hinum hálfbróðir gæsar
Og hentur í gómtaman verð.

VI. í NÁND VIÐ
ÆSKUSTÖÐVAR-Ég sé undir morgunsins sunnu
Við sjónhring í vestrinu yzt.
Hvar Stapafell stendur hjá Jökli,
Á strönd þar ég daginn leit fyrst.
Pað brúnleita felliö rís frammi
Hinn fannþakta Jökulinn við,
Pví skapað var skáhalt að standa,
Sem skjaldsveinn við kempunnar hliö.

Svo nálgast ég átthaga æsku,
Er árin um mörg ég ei sá.
Pér hlíðar, gjár, hraun, klif og fossar,
Eg hlakka til ykkur að sjá.
Ei fýsir mig förinni að dvala
Við fagrahvels byrjandi rás;
Ég hraða mér heim þig að sækja,
Minn hollvinur, Snœfellsins ásf

Stgr. 7

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:05:04 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1900/0040.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free