- Project Runeberg -  Eimreiðin / VI. Ár, 1900 /
57

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

57

að upp frá þessu snúi menn sér ekki siður að ísaldamenjunum,
sem landið er að nokkru leyti hlaðið úr, og er það nú þegar séð,
að slík athugun muni geta kent oss ýmislegt merkilegt um
mynd-unarsögu íslands — og líklega stærri svæða.1

p. t. Leith, í febrtíar 1900.

Helgi Pétursson.

Reykjavik um aldamótin 1900.

Eftir mag. Ben. Gröndal.

»HÖFUÐSTAÐUR« — nafnið er mikið í munni, eins og
ís-lendingum er tamt að tala; það er oft haft um Reykjavik, þótt
ekki sé meiningin að jafna henni við höfuðborgir eða stórborgir
erlendis. En í samanburði viö aðra staði á Islandi má hún heita
höfuðstaöur, og það því heldur, sem þetta orð er haft um
stór-bæi hér á landi, t. a. m. Odda (í Þorláks sögu helga); en þar sem
engin lýsing á Reykjavik er til, eins og hún er nú um aldamótin,
þá þykir ekki ótilhlýðilegt að gera þetta nú, og þá um leið gleyma
þeim óhróðri, sem því miður oft og tíðum hefur sést í blöðum
vorum um þenna stað, og hefur slíkt annaðhvort komið af öfund,
eða þá af því, að mönnum lætur betur að lasta en lofa. Dæmi
þess, að nokkur þjóð lasti höfuðstað sinn eða riti um hann
óhróð-ur, þótt eitthvað megi að honum finna eins og öðru, finnast ekki
í útlendum blöðum, enda er nú og alllangt síðan nokkuð slíkt
hefur sést hjá oss.

LANDNÁM REYKJAVÍKUR. »Ingólfr var frægastr allra
landnámsmanna, því at hann kom hér at óbygðu landi ok bygði
fyrstr landit«, segir Landnáma, sú bók, sem engin þjóð á hennar
lika um sögu sins lands.2 Að þvi leyti er Reykjavik merkasti
staöur á landinu, þar sem þar var fyrst bygt, þó að ekki hafi þar

1 Þess skal getið, að rannsóknir þær, er greinarkorn þetta styðst við, voru
gerðar fyrir danska peninga (frá háskólanum og kirkju- og kenslumálastjórninni).

2 Þess gætir alts ekki, að einhverjir munkar (sem þeir kölluðu »Papa«) höfðu
einhverntíma fyr komið að landi fyrir austan; íslcnzkir sagnaritarar hafa ekkert tillit
tekið til þeirra, því sem landnámsmenn voru þeir þýðingarlausir og vér vitum ekkert

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:05:04 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1900/0063.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free