Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
94
er ikke bange for Fischer«, þegar hann var fullur. Petta hús
keypti Tærgesen kaupmaður og bygði það upp handa konu sinni.
svo hún gæti verið þar eftir hans dag; siöan keypti Geir Zoega1
húsið, en bygöi sér fagurt og stæöilegt hús seinna, i sömu götu
og sama megin, og býr þar nú. Par endar su gata, en þverbeint
á þeirri götu á aö koma ný gata, og hefur þar veriö bygt eitt
snoturt hús. sem Eirikur járnsmiður á; gatan er skírð
»Vonar-stræti«, lildega til þess aÖ minna á vonirnar um dáð og dugnaö,
um samheldi og samvinnu, um ósérplægni og þjóðrækni; en ef
þetta verður aldrei annaö en von, þá ber »Vonarstræti« nafn meö’
rentu. — Gagnvart Geirs húsi er hús Porkels snikkara Gislasonar,
allsnoturt hús, og þar næst er lágt hús, sem Pétur Guðjónsson
bjó seinast í og andaðist þar. Par sem þessi hús standa nú, var
áöur kot nokkurt lélegt og óþrifalegt, og kallaö »Suöurbærinn«,.
þar var Guðmundur fjósarauður, bæjarböðull, og hans ektakvinna
»Manga meö augaö«, tvær af þessum gömlu fígúrum
fornaldar-innar, sem nú eiga ekki sinn líka. Petta síöast nefnda hús bygöi
Oddur Guöjónsson snikkari, bróðir Péturs, og haföi þaö upp á.
gamla móöinn, þótt hann væri duglegur smiöur: alt bygt niöri i
forinni og svo lágt undir loftiö, aö hár maður stendur þar varla
uppréttur, en húsiö er einloftuö lengja og ekki ásjálegt; þar andaðist
Oddur, en Pétur tók þá viö húsinu. En húsiö er merkilegt vegna
Péturs, því hann var merkilegur maöur og einkennilegur aö mörgu.
— Par næst er lágt hús og einloftaö. gamalt; þar bjó fyrrum
Stefán Gunnlaugsson landfógeti, en síöan Einar Helgason snikkari,
faðir Helga skólastjóra; Einar var einna helztur smiöur hér þá, og
merkilegur maöur. Par varÖ draugasagan, sem Siguröur
Breiö-fjörö kvaö um, og var þá þetta kveöiö: »Austan kom ég yfir
fjöll | einn um kaldan vetur, | þaö er nú mín ætlan öll | yöur aö
drepa, Pétur«. Seinna átti Gísli Magnússon húsiö og bjó þar
lengi, en eftir hann fékk Steingrimur Thorsteinsson þaö og bjó
þar nokkur ár, en flutti þaöan í hús fööur sins, eftir hann látinn.
Nú er husiö enn eign Steingríms; en þó aö það sé »á eftir
tim-anum« sjálft, þá er þar stór og góöur matjurtagaröur á bak viö
og ágætt hússtæöi, sem er mikils viröi.
Pá er »herkastalinn«. Saga hans er þannig, aö kaupmenn
bygöu þar fyrst samkomuhús eöa skytning, því aö bæinn vantaÖi
þá hæfilegt hús til veizluhalda og dansleikja, en »Gamli
klúbbur-inn«, sem þar var hjá, var oröinn of litill og öhæfilegur til allra
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>