- Project Runeberg -  Eimreiðin / VI. Ár, 1900 /
162

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

IÖ2

Móberg kalla íslendingar berg það, sem í útlöndum heitir
»tuff«, en þussaberg það, sem menn annarsstaðar kalla »breccia«.
í móberginu eru yfirleitt sömu steinefni eins og í blágrýtinu,
smá-mulin og orðin að dusti, en gleraðir og eldbrunnir hraunmolar
innan um, stundum vikur, gjall og steinkúlur (bombur), alt þetta
rusl loðir saman og er orðið að linu eða hörðu bergi; stundum er
móbergið lagskift, stundum er engin skifting sjáanleg. í hinu
ís-lenzka móbergi eru óteljandi korn af gulleitu eða mórauðu
stein-gleri, sem kallað er »palagonit« og af svörtu gleri (tachylyt); oft
er þetta alt bráðið saman við öskuna og gjallið, og alt orðið einn
eldbrunninn sori. Þussabergið er samsett af sömu efnum eins og
móbergið, en í því eru stórir hraunsteinar á víð og dreif. hornóttir
og ólögulegir. í móberginu eru mjög víða uppskotnir gangar,
hraun-æðar með ótal greinum, sem hafa brotist gegnum bergið og
kvísl-ast innan um það; í því eru enn fremur blágrýtislög, hnúöar og
kleppar með skásettum og hringsettum (koncentriskum) súlum með
bráðnu steingleri utan á; sumstaðar er svo mikið af þessu í
mó-berginu, að blágrýtið verður aðalefnið, en móbergið að eins þunt
tengiefni, svo sem t. d. í Botnsssúlum, og þar er ísnúið dólerít
ofan ä, og eins er í mörgum öðrum fjöllum um alt
móbergs-svæðið. Sumstaðar hefir líparít brotist upp í gegnum móbergið
og kvíslast með greinum innan um það eins og sjá má í
Þjórsár-dal og Hreppum sumstaðar. Móbergið ber svo augljóslega meö
sér, ab þab er myndað af eldi, að ég gåt ekki hugsað mér, aö
það dyldist nokkrum manni, sem skoðað hefir eitthvert
móbergs-fell. Eg varð því alveg hissa er ég sá, að höf. byrjar ritgjörð
sína með því sannanalaust að fullyrða, að »móbergið á íslandi sé
að miklu leyti fornar jökulurðir«. Annað mál er það, að vel getur
verið, að jökulurðir séu milli móbergslaga og hraunlaga; á það
munum vér síðar minnast.

Um miðbik íslands, í móbergshéruðunum, eru víðáttumikil
grágrýtishraun (dólerít) af svipaðri gerð eins og grjótið í holtunum
kringum Reykjavik, þau eru rispuð og ísnúin og auðséð, að jöklar
hafa gengið yfir þau; hraun þessi hafa flest hagað sér eftir
lands-lagi því, sem nú er, og runnið sumstaðar ofan dali (t. d.
Flóka-dal), niður af Mosfellsheiði, kringum fellin í Mosfellssveit og í sjó
fram. niður hlíðar og skörð á Reykjanesfjallgarði og
Snæfellsnes-fjallgarðí, undan Vatnajökli niður undir Skjálfanda og Axarfjörð,
niður á Suðurlandsundirlendi í Biskupstungum o. s. frv. Pað liggur

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:05:04 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1900/0172.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free