- Project Runeberg -  Eimreiðin / VI. Ár, 1900 /
164

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

164

varla gætu ímyndað sér annað, en að þessar reglulausu myndanir
væru til orönar af jökulgangi, ef þær ekki væru samlímdar með
glerefni (tachylyt) og ofan á þeim hvíldu mörg hundruð metra
þykk berg af blágrýti og lagskiftu móbergi. Hinir einstöku steinar
bera engan veginn hina ytri lögun eldgosasteina, en hafa aftur á
móti glögg einkenni vatnsbarins grjóts, lögin hafa því
auðsjáan-lega ekki myndast í djúpum sæ. Hnullungaberg þetta hefir
lik-lega annaðhvort myndast á strönd grunnsævar, á þann hátt, að
gosgrjót hefir ásamt smágjörvu efni borist þangað með ám, eða
þá heldur, að lög þessi eru beinlínis mynduð af fljótum úr því
engir sædýrasteingjörvingar eru í þeim«.1 Lýsing Keilhacks er
alveg rétt og á mjög vel við öll þau hnullungabergslög, sem ég
hefi séð, þó hefi ég ekki skoðað hin sömu lög og hann (undir
Eyjafjöllum) eins og höt. segir.2 Ég skoöaði hnullungalög í
Pjórsár-dal 1888 og í fjöllunum kringum Tindafjallajökul og á
Skaftár-tunguafrétti 1893.3 Hnullungalögin í Pjörsárdal fann ég 1888 í
Stangarfjalli undir dóleríthömrum (250 m. yfir dalbotni), en ekki
fann ég þar ísrákaða steina; lagi5 var auðsjáanlega myndaö af
rennandi vatni. 1899 skoðaði H. P. þetta sama lag og fann
ís-rákaöa steina i berginu litlu neðar. 1893 gekk ég upp á fjöllin
hjá Barkarstöðum (undirfjöll Tindafjallajökuls), þar skiftast á í
hlíðunum móbergslög, blágrýtislög og hnullungalög, en dólerít er
þar efst. Ekki råk ég mig þá á ísnúna steina í þessum lögum
(þö getur vel verið, að þeir séu þar), en í gráu hnullungabergi,
sem lá hallandi (discordant) á hinu, voru glöggar ísrákir á
stein-unum. »í hinum eldri og yngri hnullungalögum eru hnullungarnir
sjaldan eins hnöttöttir, eins og í ám eða við strendur, en eru
miklu líkari jökulruðningi, sem að nokkru leyti er fægður af
jökul-lækjum«.4

Sumarið 1899 skoðaði H. P. Pjörsárdal og Hreppa og fann
þar ísrákir á steinum í hnullungaberginu og ísrákir á dölerítlögum,
sem hann segir að gangi inn í móbergið. Á þessum athugunum

1 Zeitschrift der Deutschen geologischen Gesellschaft 38. Band 1886, bls. 384
-385.

2 I ritgjörð H. P. hefir eitthvað ruglast á 53. bls.; líklega fallið úr nokkrar
setningar, svo ég skil ekki vel tvær fyrstu greinarnar.

s Geografisk Tidskrift X, bls. 15, XII, bls. 203. Petermanns Mitteilungen 1892,
bls. 27.

4 Geografisk Tidskrift XII, 1894, bls. 203.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:05:04 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1900/0174.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free