- Project Runeberg -  Eimreiðin / VI. Ár, 1900 /
177

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

177

efni frá Sjómannaskólanum, allir þrútnir af matematík og hugsandi
um »pólihæðina«; þeir heilsa ekki, þeir vita hverjir þeir eru,
kall-arnir! Peir eru tvö ár á skólanum og eru þá útlærðir og fá
jafn-há laun og héraöslæknirinn og hærri en aukalæknarnir, sem hafa
verið tólf ár að læra. Svo mætum við kannske vatnskarli með
járnvagn og járntunnu, sem vatnið gusar og vellur upp úr og út
um alla götuna, en ekki heyrist mannsins mál fyrir glamrinu. —
Par kemur einti ríðandi og ri’ður of hart — en Póli er þar eins og
elding og tekur í taumana og sektar þann brotlega syndara. Pá
eru stúlkur með barnavagna, aðrar með brauðkarfir, eða sumar
með fislc — eða reiðhjólin þjóta með stígandi læralyftingum eins
og örskot fram hjá steinhissa ferbamönnum; — því skyldi manni
ekki detta í hug, það sem Jón bóndi sagði, þegar hann kom á
Austurgötu í Kaupmannahöfn: »Á hverju lifir alt þetta fólk ?«
Eða þá aö stundum sést mannþyrping, sem er að hlusta á
ein-hvern guösmann eða syndaprédikara, sem þrumar um sitt eigið
fyllirí og hvernig máttugir andar hafi snúið honum frá villu hans
vegar og keyrt hann af afli inn í heilagleikann, og svo heimtar
hann með hótunum um helvíti og kvalirnar, aö allir verði heilagir.
— Pá kemur »Hjálpræðisherinn« með fíólín og söng og gengur
hátíðlega fullur af guðrækni með frelsuðum sálum, en fjöldi
ung-menna og smástelpna fylgir á eftir í eftirvæntingu eilífs lífs og
frelsisins. Á sumrin koma og ýmsir útlendingar, og hefur
»Ferða-mannafélagið« ætlaö að draga þá hingað, til þess að eyöa
pening-um hér, en það hefur ekki tekist sem bezt, enda er þetta félag í
rauninni einskonar betlifélag, eins og öll slík félög í útlöndum (en
þaðan er þetta apaspil komið eins og fleira); en margir koma, sem
ekkert eiga skylt við slíkt tildur; sumt af þessu fólki fer að sjá Geysi,
þótt vér nú ekki getum sýnt hann sem islenzka eign, því hann er
seldur ütlendingum eins og annað. Meðan hin frakknesku þilskip
lágu hér, þá var oft krökt á götunum af frönskum sjómönnum,
og voru þeir ekki betri en okkar menn, heldur miklu verri, en
tólfunum kastaöi þegar ensku herskipin komu hingaö 1896; þá
mátti sjá mann á götunum, þegar þeim var hleypt í land
hundr-uðum saman, og hefur bærinn aldrei séð annan eins tartaralýð og
þessa Englendinga: þeir drukku alt sem af tók, og voru blindfullir
að slæpast um allar götur, stálu mörgu og létu illa, enda færa
þessháttar menn sig fljótt upp á skaftið, þegar þeir sjá, að engin
vörn er fyrir og ekkert lögreglulið; vér munum svo langt, að

12

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:05:04 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1900/0187.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free