- Project Runeberg -  Eimreiðin / VII. Ár, 1901 /
115

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

"5

Hér samlagast eitt af háfleygustu efnum, sem mannsandinn hefir hugsað
sér, einhverri beztu formlegri meðferð, sem tunga vor á til (nfl.
Prome-þeifs sagan). í þessu eina kvæði eru margir skáldlegir fjársjóðir. 1
hvert skifti sem menn lesa það, munu menn finna eitthvað nýtt til að
dást að. Sumar lfnur hér eru á við löng kvæði, t. d.:

»en enginn vindur öldur helgar bærði
undir vizkutrésins rót«.

En um það vil ég eigi fjölyrða hér. Ég vil einungis benda á, að í
kvæðinu er miklu meira af skáldlegu hugmyndaflugi tiltölulega, en
heimspekilegum rannsóknum um tilveruna. Gröndal hefir oft og einatt
hleypt út í þessháttar rannsóknir, vanalega ríðandi á Pegasusi, og
vana-lega heíir klárinn þreyzt á hraungrj’ti heimspekinnar. Gröndal er ekki
heimspekingur, sem yrkir, heldur skáld, sem þykir vænt um heimspeki,
og vill låta gilda í hennar heim hugsjónir sínar og lög þau eða
lög-leysur, sem hann fylgir í heimi skáldskaparins. Kn Gröndal stendur
fjarri vísindalegri heimspeki, það sést á annarri eins yfirlýsingu og hér
fer á eftir: »Öll sú vizka, sem vér köllum hugsunarfræði, Logik, er
dauft merki upp á skarpleik mannanna; og þeir sem kunna hana bezt,
þeir hugsa líka verst og vitlausast. Petta er margreyndur sannleikur«.
(Gröndal í Gefn I (1870), bls. 80, í athugasemdunum við »Hugfró«),

Fá íslenzk skáld kunna að blanda saman gamni og alvöru eins
vel og Gröndal. Eitthvert bezta dæmi þess er kvæði, eða öllu heldur
samsteypa úr kvæðum, er nefnist »Gaman og alvara«, bls. 235—250.
Kvæði þetta er svo einkennilega »gröndalskt«, að ég vona, að lesendur
Eimreiðarinnar fyrirgefi mér, þó ég fari all-ýtarlega í það.

Það byrjar þá á því, að skáldið situr einn yfir bókum sínum,
fjarri vinum og fósturjörð; og hann yrkir í tvíhendum :

»Sit ég nú hér og svo halda allir að sé ég að lesa
helgra históríum í — hér ei annað að fá.

Bænakver og Bónaventúra og Biblían helga,

alt er hér borðinu á — alt er ég búinn með það.

En hér er líka pappír og blek og praktugir pennar,
og, sem glóandi gull, gáfaði hausinn á mér.

Það veit Drottinn, ég þarf ekki bækur! ég þeysandi sveima
glaður á guðlegum væng gegnum hið ferlega djúp«.

Og nú fer skáldið að lýsa sjónurn si’num,

»sem roér að augunum æ óðfluga þrengja sér fram«.

Hér má eftir mörgu taka, og þá fyrst eftir því, hvernig öllu er
hér snarað á pappírinn alveg umhugsunarlaust, undir eins og skáldinu
vitrast ný sjón. Afleiðingin er þá auðvitað, að kveðandi og mál verða
sumstaðar nokkuð flaustursleg. En höldum áfram með kvæðið. Næst
á eftir tvíhendunum koma tvær vísur. sem lítil meining er í; þar eru
tvö viðlög, bæði gömul en harla lik, annað: »Listamaðurinn lengi þar við
undi«, en hitt: »CDEFGHI«. Þá kemur alvarlegt og háfleygt kvæði:

8*

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:05:17 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1901/0127.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free