- Project Runeberg -  Eimreiðin / VII. Ár, 1901 /
145

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

145

voru, biðu ekki einu sinni á meðan organistinn var að lúka við
útgöngusálminn, eins og þær voru þó vanar að gjöra. í>að var
líka farinn að heyrast hljóðfærasláttur úr stóra skálanum, enda var
farið að rökkva. Áður en langt um leið, var skálinn oröinn
troð-fullur hringinn í kring, því menn voru orðnir því vanir, að raöa
sér út við veggina eins og kindur á jötu, svo að miðjan væri auð
og til taks. hvenær sem á þyrfti að halda.

Og þess var ekki langt að bíða. Hljóðfærið gall við, og þá
hófst dansinn. Fyrst dönsuðu tiltölulega fáir, en þeim fjölgaði
altaf, þangað til alt var komið á iðulausa hringferð, sem stundum
varð að endalausri þvögu. Pegar frá leið, tóku sumir sig út úr
þvögunni, námu staðar ut viö veggina, og fóru að þurka af sér
svitann með vasaklútunum sínum, en menn voru lítið orðnir sveittir
ennþá. En hvað þaö var notalegt, að geta hitað sér svona,
jafn-skjótt og komið var úr kirkjunni. Hitatilfinningin gagntók sál og
líkama, og mönnum fanst guðs orð, sem þeir höfðu hlýtt á í
grimdarhörku, eins og þiðna og verða nú fyrst að tilætluðum
notum.

»Ætlarðu að fara strax?« spurði Rósa á Bakka Guðrúnu á
Melum, sem fór að låta á sig sjalið eftir fyrsta dansinn.

»Eg held það«, svaraði Guðrún. »Hann er heldur að dimma,
og það er ekki að vita, nema hann bresti á, þegar minst varir«.

»Heldurðu það? Hann verður ekki svo vondur, að ekki veröi
ratfært í tungsljósinu. Pú ættir ab bíða eftir söngnum«.

»Pað verður enginn söngur í kvöld. Ég spurði hann Gísla aö
því áðan, og hann hélt, að organistinn væri farinn«.

»Farinn?«, tók Rósa upp eftir henni. »Pað er ómögulegt.
Hann hefir ekki kvatt«.

»PaÖ er satt, en ég þori ekki að slæpast lengur«.

»Eruð þið aö fara, dúfurnar mínar?« spurði Sigríður í Nesi,
sem kom að í þessu. Hún var að vísu gift kona, en hún var
barnung, og ekki orðin leið ennþá á glaum og gleði lífsins, enda
var hún vön að slá í einn hring með unga fólkinu, þegar hún kom
til kirkju, áður en hún fór af stað.

»Ekki ætlaöi ég nú strax«, gegndi Rósa, og lagaði á sér
svuntuna.

»Mér sýnist það«, sagði Sigríður. »Það er nokkuð til
hátta-tíma enn, svo það liggur ekkert á«.

Svo fóru þær allar saman að dansa, því nú mátti heita,. að

io

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:05:17 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1901/0157.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free