Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
i8o
hríngurinn hans á Strympu var stór. Það var fljótséð : Stórskógur
á þrjá vegu nálægt fjörutíu faðma frá kofanum, en þó að sönnu
sæist fram á vatnið á einn veginn, þá notaðist það útsýni ekki,
því skógurinn bar það ofurliði. Pví varð ekki neitað, að
þröng-sýnið var þar mikið, það gåt ekki heitið, að það sæist nema upp í
heiðan himininn. En hér var eins og himininn steyptist út yfir
alla jörðina og allan alheiminn. Og þegar hann lét hugann svífa
í norðurátt, fanst honum hann sjá bygö sína liggja í doðamóki,
hulda í eilífri þoku, sem enginn stormur megnaði að reka á flótta,
en sjálfr var hann nú kominn þangað, sem þokan náði ekki til, og
útsýnið var víðtækara og skírara, og himininn stærri og bjartari
og lengra frá jörðunni; en svo fanst honum, að þegar hann færi
þaðan aftur, þá yfirgæfi. hann víðsýni og sólskin, en færi aftur inn
í skógarrjóðrið á Strympu, þar sem þrönga útsýnið var, og þokan
eilífa grúfði yfir — — —
Sólin var fyrir stundu gengin undir og farið að verða
skugg-sýnt. Og nú var kveikt á rafmagnslömpunum, sem settir vóru
á háar stengur hér og hvar með fram götunum. Jón sá alt i einu
tvö stór ljós, annað bar við himininn í vestri, en hitt var í norðri.
og sást fyrir ofan húsþökin. Jafnfalleg ljós hafði hann ekki séð
fyrri á æfi sinni. »Ljómandi^stjörnur eru þetta,« sag5i hann. »Svona
fallegar stjörnur hef ég aldrei séð á Strympu.«
Og er hann hafði skemt sér tímakorn við aö horfa á þessar
fallegu stjörnur, fór svefninn og þreytan eftir ferðina aö sigra hann,
svo hann lokaði glugganum og bjöst til sængur. Vá veitti hann
því eftirtekt, aö hvítu kalkveggirnir i herberginu skriöu krökkir af
pöddum, sem hann bar fyrst ekki kensl á, en sá þó fljótt að vóru
veggjalýs. Pað vóru líka þriflegar skepnur. Honum þótti einhver
munur aö sjá þær eða systur þeirra, sem skriðu um veggina á
Strympu og varla sást blóðdropi í. Paö var líka munur á æfinni,
sem þær áttu. Þar nyrðra höfðu þær í tuttugu ár búið við sult
og seyru, og ekki haft annað aö nærast á en fjörlaus og úttauguð
gamalmenni, en hinar frá barndómi alist upp og lifaö í
allsnægt-um og eftirlæti hjá íslenzka heldra fólkinu og yngismeyjum þar í
borginni; það var sízt að undra, þó þær væru bústnar og
sæl-legar.
Og út úr þessu leiddust hugsanir hans aö öðru háfleygara
efni. í seinni tíö hafði hann heyrt marga halda því fram, að
naut-gripakyn Ný-íslendinga væri í mestu afturför, og bráð nauðsyn
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>